Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Þverbrekknamúli

Skáli F.Í. í Þverbrekknamúla stendur í 550 m y.s., gps. 64 43.100 19 36.860 SA undir Hrútfelli, nálægt Fúlukvísl. Hann er á miðri gönguleiðinni um Kjalveg hinn forna. Skálinn var byggður 1980 og  stækkaður og endurbyggður 1996.  Skálinn rúmar 20 manns í kojum. Húsið er á einni hæð, kynt með gasi og olíuvél. Þar er gaseldavél, eldhúsáhöld og borðbúnaður. Rétt við skálann er salernishús sem byggt var 2002. Gott tjaldstæði er skammt frá húsinu.  Í skálanum er neyðartalstöð.  Sorphirða er ekki á staðnum. Kamar skammt frá skála fyrir vetrarumferð. 

Fyrsta brúin á Fúlukvísl var byggð 1981, sú brotnaði undir snjó á fyrsta vetri. Aftur var byggð brú 1985, 10 árum síðar sligaðist hún undan snjóþyngslum, en var endurbyggð sama ár.  Í miklu vetrarflóði árið 2004 hvarf sú brú í heilu lagi.  Sumarið 2005 var enn byggð ný brú. Hún er 18 metra löng og stendur 10 m yfir vatnsborði.  Hún mun vonandi þola átökin við á ána í nánustu framtíð.

fula1

Ný brú yfir Fúlukvísl var byggð í sumarið 2005 undir forystu Valdimars Valdimarssonar.  Brúin stendur í um 10 metra hæð, er 18 metra löng.

 

 



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Skálar » Þverbrekknamúli

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Ferð á Þverártindsegg

Veldu ferðafélag