Á döfinni
Eitt fjall á viku árið 2012
Ferðafélag Íslands hefur í tvö ár starfrækt verkefni sem er ýmist kallað 52 fjalla verkefnið eða Eitt fjall á viku . Það hefur notið mikilla vinsælda og hafa þátttakendur verið langt á annað hundrað bæði árin sem því hefur verið haldið úti.
Nú er verkefni nýs árs í mótun og verður boðað til kynningarfundar snemma í janúar með auglýsingum í blöðum milli jóla og nýárs. Ákveðið hefur verið að opna fyrir skráningu nú þegar og geta áhugasamir sett sig í samband við skrifstofu FÍ.
Í öllum meginatriðum verður verkefnið með svipuðu móti og verið hefur undanfarin tvö ár. Þó eru alltaf smávægilegar breytingar milli ára sem mótast af reynslunni sem safnast fyrir. Þannig hefur t.d. Hekla verið tekin af dagskránni og skemmtiferð til Vestmannaeyja sett á dagskrá í staðinn en þar ganga þátttakendur á hæstu fjöll Heimaeyjar og kynnast menningu eyjarskeggja.
Á nýju ári verður fyrir utan fjöllin 52 boðið upp á tvö námskeið sem eru innifalin. Annars vegar er GPS námskeið þar sem farið er gegnum stillingar og notkun GPS tækja og helstu atriði siglingafræðinnar yfirfarin.
Hinsvegar er kynning á búnaði, mataræði og líkamsþjálfun sem tengist útivist. Umsjón þessara námskeiða verður í höndum fararstjóra verkefnisins.
Umsjónarmaður og aðalfararstjóri verkefnisins á nýju ári verður Páll Ásgeir Ásgeirsson en aðrir fararstjórar í teyminu eru: Hjalti Björnsson, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson, Anna Lára Friðriksdóttir og Brynhildur Ólafsdóttir.
Álfar og tröll - Vífilsfell um Jónsmessu
Ferðafélag barnanna býður upp á gögnuferð á Vífilsfell um Jónsmessu föstudaginn 24 júní. Lagt verður af stað kl. 18 frá Mörkinni 6 á einkabílum.
Álfadans og leikir, lifandi tónlist og dulúðleg stemming. Þáttaka ókeypis og allir velkomnir.
Esjudagur fjölskyldunnar - FÍ Valitor Visa
Áður þurfti að fresta Esjudeginum vegna þess að veðurguðirnir voru okkur ekki hliðhollir en nú er komin ný dagsetning. Esjudagurinn verður haldin 28 ágúst með sömu dagskrá og áður var auglýst.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Barnavagnavika - Athugið að brottfarartími er kl 12:30
Ganga hefst alltaf kl 12:30, ekki 12:00 eins og áður var auglýst.
Morgungöngur FÍ 2011 -Við fyrsta hanagal
89 manns gengu með Ferðafélagi Íslands á Vífilfellið í morgun, fimmtudag í fjórðu morgungöngu félagsins á árinu.Góð stemning var í hópnum enda úrvalsveður og vegna fjölda áskorana var tvílesið úr Skólaljóðunum. Myndir úr göngum undanfarinna daga eru hér og hér.
Hvern dag þessarar viku er gengið á fjall í nágrenni Reykjavíkur og lagt af stað úr Mörkinni 6. kl. 06.00. Hentugt er að safnast saman í Mörkinni 6 og sameinast í bíla eftir því sem kostur en þeir sem vilja geta komið að upphafsstað göngu hvern dag.
Með morgungöngum er hægt að sækja sér magnaða orku með snertingu við náttúruna í þeirri sérstöku stemmningu sem vormorgnar bjóða þeim sem fara snemma á fætur.
Þátttaka er ókeypis. Þátttakendur leggja til sjálfa sig og gleði sína af göngunni en Ferðafélag Íslands leggur til fararstjóra og býður þátttakendum upp á léttan morgunverð á síðasta fjalli vikunnar og þá er iðulega óvænt skemmtiatriði.
Fjöllin sem gengið verður á að þessu sinni eru: Helgafell við Hafnarfjörð, Mosfell, Helgafell við Mosfellsdal, Vífilsfell og Úlfarsfell. Fararstjórar verða: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.
Fjall föstudags sem er jafnframt síðasta morgunganga þessa vors er Úlfarsfellið. Í þeirri göngu verður léttur morgunverður í boði Ferðafélagsins og síðan mun Gunnsteinn Ólafsson kórstjóri leiða þátttakendur í sérstæðum og afar þjóðlegum sönggjörningi sem verður nánar skýrður út á vettvangi.
Aka skal þjóðveg eitt (Vesturlandsveg) en beygja út af til hægri við eyðibýlið Bauhaus. Síðan beygja straxtil hægri inn á Lambhagaveg og fljótlega af honum til vinstri inn á Gefjunnarbrunn. Ekið er eftir Gefjunnarbrunni í gegnum nokkur lítil hringtorg en þegar komið er að því síðasta skal beygja út úr því inn á Skyggnisbraut og aka eftir ehnni gegnum Urðartorg og þá mun blasa við bílastæði þar sem ganga hefst. Sjá kort hér.
Dagskrá vikunnar í heild:
Mánudagur 2. maí: Helgafell við Hafnarfjörð
Þriðjudagur 3. maí: Mosfell í Mosfellsdal
MIðvikudagur 4. maí: Helgafell í Mosfellssveit
Fimmtudagur 5. maí: Vífilsfell
Föstudagur 6 maí: Úlfarsfell
Leiðsögn að hverju fjalli fyrir sig verður birt hér síðunni daglega meðan morgungöngurnar standa.
Páskaeggjaganga Fí og Góu í dag 14.apríl
Páskaeggjaganga Fí og Góu 14.apríl í Esjunni, norski skógurinn: Lagt af stað frá Esjustofu kl.18.00 og gengið í átt að norska skóginum og til baka að Esjustofu, þetta verður létt ganga og til skemmtunar. Við Esjustofu verða dregin út páskaegg, tilvalið fyrir fjölskylduna að mæta og taka stutta göngu saman,
Lifandi myndir í Mörkinni 6
Miðvikudagskvöldið 19. jan. n.k. verður haldið eitt af hinum sívinsælu myndakvöldum Ferðafélags Íslands. Að þessu sinni verður um bíómyndakvöld að ræða því sýndar verða tvær kvikmyndir eftir Pétur Steingrímsson kvikmyndagerðarmann og göngugarp.
Fyrri myndin er tekin í göngu á Hvannadalshnúk vorið 2010 og heitir: Hæsti tindurinn heillar. Pétur tók þátt í hinni hefðbundnu hvítasunnugöngu FÍ. Hópurinn hreppti einmuna gott veður og fyrir vikið náðust myndir sem teljast mega einstæðar því varla munu dæmi um að kvikmyndagerðarmenn hafi áður borið tækjabúnað sinn upp á hæsta fjall landsins. Inn í myndina er fléttað sögu fjallganga á Öræfajökli og myndin sýnir mannlíf og stemmningu í hinum vinsælu Hvannadalshnúksgöngum.
Seinni myndin er tekin í gönguferð hóps úr Garðabæ eftir Jökulsárgljúfrum sumarið 2004. Það eru það fossandi vötn, brumandi skógar og fagur gróður sem fanga augu myndavélarinnar ólíkt ís og hjarni Hvannadalshnúks.
Af þessu tilefni verður ekki boðið upp á hefðbundnar kaffiveitingar í hléi á myndakvöldinu heldur verður poppkorn og kók eins og títt er í kvikmyndahúsum.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Árbók FÍ 2010 - Friðland að Fjallabaki
Árbók Ferðafélags Íslands fjallar að þessu sinni um Friðland að Fjallabaki en þar eru Landmannalaugar og nágrenni í öndvegi. Höfundur bókarinnar er Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ.
Ferðafélag barnanna - nýstofnað félag innan FÍ
Ferðafélag Íslands hefur stofnað Ferðafélag barnanna sem hefur það að markmiði að hvetja börn og foreldra til útiveru og náttúruupplifunar. Ný heimasíðu Ferðafélags barnanna er www.allirut.is
Jónsmessugöngu FÍ aflýst
Sumarsólstöðuganga á Snæfellsjökul 18.júní
Brottför frá Mörkinni 6 kl. 17 og ekið vestur að jökli. Stutt stopp og fræðsla að Hellnum um þjóðgarð og jökul. Lagt af stað í gönguna kl. 21 og er gengið úr Eysteinsdal að norðanverðu og þar upp sérlega fallega og fáfarna gönguleið. Þátttakendur baða sig í miðnætursólinni á tindi Snæfellsjökuls um miðnættið. Nokkrir listamenn verða með nokkurs konar gjörninga í leiðangrinum og gefst þátttakendum kostur á leggja sitt af mörkum.
Ferðin er farin í samstarfi við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og fylgja landverðir hópnum. Ferðafélag Íslands og Þjóðgarðurinn beita sér fyrir því að umferð vélknúinna ökutækja verði ekki á jökli þennan dag.
Verð: 5000 / 7000 í einkabíl - 7000 / 9000 með rútu.
Skráning og greiðsla fyrir 1. júní
Esjudagur FÍ og VISA 12. júní
Laugardaginn 12, júní n.k frá kl 13 - 16 verður hinn árlegi Esjudagur Ferðafélags Íslands og VISA haldinn. Boðið upp á gönguferðir á Esjuna í fylgd fararstjóra frá FÍ. Fjallamenn mæta, ratleikur, skógarganga o.fl.
Sjáumst á laugardag.
Við bendum ykkur á að það gengur strætó frá Háholti Mosfellsbæ leið 57 yfir daginn. Nánari upplýsingar á www.straeto.is
Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir. Nánar auglýst síðar.
Hálendisbókin - þriðja útgáfa
Hálendishandbókin - ökuleiðir, gönguleiðir og áfangastaðir á hálendi Íslands er komin út í þriðja sinn. Bókin er orðin sígild sem traustur ferðafélagi á hálendinu og í þessari nýju útgáfu eru uppfærðar upplýsingar, nýjar ljósmyndir og nýjar leiðarlýsingar til nokkurra staða.
Höfundur bókarinnar er Páll Ásgeir Ásgeirsson sem situr í stjórn FÍ og fæst við fararstjórn á vegum félagsins.
Fimm tindar í Þingvallaþjóðgarði
Fimm tindar í Þingvallaþjóðgarði með FÍ
Syðstasúla 27. maí
Fararstjórar Sigurður Kristjánsson og Alfreð Hilmarsson
Farið á einkabílum úr Mörkinni 6. kl. 18.
Verð kr. 2.000/3.000
Innifalið: Fararstjórn
Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina á skrifstofu FÍ.
Örganga á miðvikudag
Örganga
Þriðja gangan um nágrenni Grafarholtsins verður miðvikudaginn 19. maí. Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19:00. Leið: Gengið um veginn, sem liggur samhliða rörunum frá Nesjavöllum.Þaðan haldið stíg sem liggur um Selbrekkur að Rauðavatni - þaðan vestur með vatninu og upp Lyngdalinn - þaðan um Skálina og á veginn meðfram hitaveiturörinu. Leiðin er að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm. Þetta er ekki hraðganga. Ætlaðar eru 1 1/2 - 2 klukkstundir til ferðarinnar. Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.
Fararstjórar: Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson
Örganga í Grafarholti 12. mai
Örganga
Önnur gangan um nágrenni Grafarholtsins verður miðvikudaginn 12. maí. Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19:00. Leið: Gengið um stíginn, sem liggur að Reynisvatni - þaðan haldið upp á Velli - þaðan um Leirdalsklauf upp á Grenás - þaðan í Skálina (Paradísardal) - úr Skálinni niður á göngustíginn, sem liggur að - að geymunum. Leiðin er að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm. Þetta er ekki hraðganga. Ætlaðar eru 1 1/2 - 2 klukkstundir til ferðarinnar. Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.
Fararstjórar: Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson
Barnavagnavika Fí og Ferðafélags barnanna
Barnavagnavika FÍ 10. - 14. maí
Á þriðjudag er gengið frá Árbæjarsundlaug, á miðvikudag er gengið frá Gerðarsafni í Kópavogi og á fimmtudagsmorgun kl. 10.30 frá Húsdýragarðinum í Laugardal og verður öllum þátttakendum síðan boðið í húsdýragarðinn að göngu lokinni.
Ekki verður gengið á föstudag, en boðið upp á gönguferð mánudaginn 17. maí kl. 12.30. Gönguferðirnar eiga að vera léttar og skemmtilegar, með léttum æfingum og teygjum inn á milli ca 90 mínútur hver gönguferð.
Með allt á bakinu - bakpokanámskeið - 12 apríl
Námskeið fyrir fólk sem vill kynnast heimi bakpokaferða og fræðast um búnað og fatnað sem þarf til þess að ferðast frjáls eins og fuglinn með allan mat og búnað í einum bakpoka.
Námskeiðið fer fram í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6.
Bóklegt og verklegt vaðnámskeið
Árlegt vaðnámskeið Ferðafélagsins, bæði bóklegt og verklegt þar sem farið er yfir hvernig hægt er að lesa í ár og vöð og hvernig skuli bera sig að í straumvötnum. Farið yfir búnað og fleira.
Sjá nánar >>
Óvissuferð í Esjunni - Annar í páskum
Óvissuferð í Esjunni kl. 11:00, mæting við Esjustofu, undir stjórn Þórðar Marelssonar
Páskahátíð í Esjuhliðum
Gengið upp að Steini undir forystu Þórðar Marelssonar, létt morgunganga.
Útitónleikar við Esjustofu, gítarleikur og söngur fjallamannsins fríska.
Páskaeggjaleit í Esjuhlíðum
Páskaeggjaleit í Esjuhlíðum, Heyrst hefur að nokkur egg séu af stærstu gerð! Ganga undir forustu Þórðar Marelssonar, í átt að Gunnlaugsskarði, og jafnvel upp í skarð, jafnvel alla leið, fer eftir veðri og vindum.
Gosstrókar um hundrað metra háir
Mjög vont veður á Fimmvörðuhálsi
Allt að 3500 manns skoðuðu gosið
Skiptimarkaður
Leit
Mynd























