Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Félag allra landsmanna

Ferðafélag Íslands er félag áhugamanna og hefur verið það í 80 ár.

Félagsmenn FÍ njóta umtalsverðra fríðinda. Má þar nefna Árbók félagsins sem er innifalin í árgjaldi. Afslátt í ferðir félagsins, afslátt í gistingu í skála félagsins sem og í skála ferðafélaga á norðurlöndum, afslátt í fjölda verslana og fróðlegra upplýsinga um ferðalög. 

Síðast en ekki síst er félagsskapurinn afar mikilvægur, að vera í góðum hóp fólks sem hefur yndi af því að ferðast um landið okkar.

Fi-felagar-450

Skálar FÍ,  38 standa öllum opnir. Almenningur hefur not af gönguleiðum og brúm sem félagsmenn hafa merkt og smíðað. Útsýnisskífur lýsa staðháttum öllum sem á þær líta. Íslandslýsingar Ferðafélagsins, árbækurnar, eru öllum ætlaðar.

Þótt Ferðafélag Íslands sé nú meðal fjölmennustu félaga landsins er enn þörf liðsmanna, sem leggja sitt af mörkum til þeirrar menningar- og ræktunarmála er Ferðafélagsmenn ástunda.

Árgjaldið 2011 eru 6.300 kr

Þátttaka í félaginu er þinn ávinningur

  • Með félagsaðild í Ferðafélagi Íslands opnast óteljandi möguleikar um spennandi ferðalög innanalands.

  • Ekki þarf að hafa neina sérstaka reynslu af ferðalögum til að ganga í FÍ, bara áhuga.

  • Allir félagsmenn fá félagsskírteini þar sem fram koma öll þau fríðindi sem félagsmenn njóta.

  • Félagsmenn FÍ ganga fyrir með gistingu í skálum félagsins á hálendinu og víðar

  • Ferðaskálar og Sæluhús FÍ og deilda þess eru alls 37 talsins

  • Félagsmenn fá afslátt á gistingum í skálum félagsins

  • Félagsmenn fá afslátt í ferðir félagsins 

  • Félagsmenn fá þjálfun og leiðsögn um ferðalög 

  • Félagsmenn fá fréttabréf FÍ sent heim

  • Félagsmenn fá Árbók FÍ senda heim eftir að hafa greitt árgjaldið

  • Félagsmenn fá afslátt í fjölda verslana, m.a. útivistarverslana Sjá nánar hér


Það er vel tekið á móti öllum nýjum félögum hjá Ferðafélagi Íslands.

Ég óska eftir því að gerast félagi í Ferðafélagi Íslands> fi@fi.is



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Um FÍ » Að gerast félagi í FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag