Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

Fréttir - RSS

21.2.2012

Tilboð á Ferðaaski til félagsmanna FÍ

Tilboð á ferðaaski til félagsmanna FÍ.  Félagsmenn í Ferðafélagi Íslands fá 10% afslátt af  verði FerðaAsks.FerðaAskur inniheldur allt nesti sem þú þarft, hvort sem þú ert að fara í dagsferð eða lengri ferð.Bæði Litli FerðaAskur fyrir dagsferðir og Stóri FerðaAskur fyrir 2ja til 5 daga ferðir, eru til í 3 stærðum.
Alvöru íslenskt nesti þar sem öllu er pakkað í góðar umbúðir og eina sem þarf að taka með er heitt vatn á brúsa.
Panta þarf fyrir kl. 15, 2 dögum

21.2.2012

Aðalfundur Vina Þórsmerkur

,Aðalfundur Vina Þórsmerkur verður haldinn í í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6, miðvikudaginn 29. febrúar kl. 20:00.Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundarstörf auk þess að ný göngukort um Þórsmerkursvæðið verða kynnt ásamt kynningu á starfi félagsins við viðhald gönguleiða.

 Allt áhugafólk um velferð Þórsmerkursvæðisins er velkomið og eru nýjir félagar velkomnir.

 

Stjórn Vina Þórmerkur."

18.2.2012

Fjall mánaðarins í febrúar er Grímannsfell.

Önnur ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2012 á vegum Ferðafélags Íslands verður  farin laugardaginn 25. febrúar.

Gengið verður á Grímannsfell í Mosfellsdal sem er 482 m. hátt fjall sem er staðsett austast í Mosfellsdal.

Grímannsfell er hæsta fjallið í Mosfellssveit, nokkuð víðáttumikið og gott útsýnisfjall.

Sjá nánar>>

15.2.2012

Helgi og dýrkun steina og kletta

Laugardaginn 25. febrúar nk. heldur Nafnfræðifélagið fræðslufund í Odda, húsi Háskóla Íslands, stofu 106, kl. 13.15. Sigurður R. Helgason, framkvæmdastjóri, flytur erindi sem hann nefnir  HELGI OG DÝRKUN STEINA OG KLETTA Á ÍSLANDI  

8.2.2012

Skyndihjálp í óbyggðum - námskeið fyrir félagsmenn FÍ

Ferðafélag Íslands býður upp á námskeið fyrir félagsmenn í Ferðafélaginu, Skyndihjálp í óbyggðum
Umfjónarmenn: Övrvar og Ævar Aðalsteinssynir
Dagsetning: 28. febrúar, 1. mars og 6. mars, 18. - 22.00,  í sal Ferðafélags Íslands Mörkinni 6.

8.2.2012

Námskeið fyrir félagsmenn - Vetrarfjallamennska og skyndihjálp í óbyggðum

Ferðafélag Íslands býður upp á námskeið bæði fyrir félagsmenn í Ferðafélaginu.    Á næstunni verður boðið upp á námskeið bæði í skyndihjálp i óbyggðum sem og vetrarfjallaferðamennsku.

8.2.2012

Fjallakofinn styður Ferðafélag Íslands

Fjallakofinn og Ferðafélag Íslands hafa gert með sér samkomulag til þriggja ára.  Með samstarfssamningi þessum styrkir Fjallakofinn myndarlega við starf Ferðafélags Íslands og þá sérstaklega sem lítur að ferðum og þann búnað sem þarf til ferða.  Fjallakofinn útvegar fararstjórum  FÍ MARMOT  útivistarfatnað sem og veitir félagsmönnum FÍ veglegan afslátt af öllum vörum í Fjallakofanum, sem og býður þátttakendum í fjallaverkefnum FÍ og einstaka ferðum upp á sérstök vildarkjör.

7.2.2012

Ferðaaskur - nesti fyrir ferðamenn

FerðaAskur er sérútbúið nesti fyrir útivistarferðir, hvort sem um er að ræða dagsferðir eða lengri ferðir.
Oft fer mikill tími í að versla, útbúa og pakka nesti fyrir útivistir.
Margir eru líka í vafa um magn nestis, pökkun þess og hentugleika á fjöllum.
FerðaAskur séu um allt þetta fyrir þig.
Allur matur tilbúinn í einum pakka, degi fyrir brottför.

7.2.2012

Borgarganga Hornstrandafara FÍ

Borgarganga Hornstrandafara FÍ verður að þessu sinni í Garðahverfi og Hafnarfirði, á svipuðum slóðum og í fyrra. Genginn verður hringur frá samkomuhúsinu á Garðaholti áleiðis til Hafnarfjarðar og aðra leið aftur til baka. Staðnæmst verður við hús Bjarna riddara, elsta hús í Hafnarfirði, og þaðan gengið til baka um Kirkjuveg, Garðaveg og Kirkjustíg aftur að  Garðaholti.

26.1.2012

Ferðaáætlun 2012 komin út - Fjölbreytt sumardagskrá framundan segir Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefndar

Ferðaáætlunin skiptist í nokkra flokka. Sumarleyfisferðirnar eru vinsælastar, þær verða hátt í fjörutíu talsins næsta sumar. Þar er um að ræða gönguferðir; fjögurra til átta daga og má þar nefna ferðir um Hornstrandir, Laugaveginn og Þjórsárver.

23.1.2012

Gönguleiðir og áningastaðir í A- Skaftafellssýslu

Boðað er til kynningarfundar um gönguleiðir og áningarstaði í A- Skaftafellsýslu
og samspil þess við önnur verkefni.  Fundurinn verður haldinn í Hrollaugsstöðum, þriðjudaginn 24. janúar 2012, kl. 20.00.  Á meðal frummælenda á fundinum er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ.

19.1.2012

Aðalfundur Ferðafélags Mýrdælinga

 Aðalfundur Ferðafélags Mýrdælinga verður haldinn á Ströndinni í Víkurskála laugardaginn 21. janúar 2012 kl. 14:00Fundarefni:1. Venjuleg aðalfundarstör2. Önnur mál.   Stjórnin

 

19.1.2012

Gengið á góða spá- skíðaganga á sunnudaginn

Sunnudaginn 22. janúar n.k. efnir Ferðafélag Íslands til skíðagönguferðar í Marardal undir slagorðinu: Gengið á góða spá.  Gangan hefst við Hellisheiðarvirkjun og verður haldið norður með Húsmúla í Engidal og þaðan áleiðis í Marardal. Engidalur og Marardalur eru í hlíðum Hengilsins.
Hér fyrir neðan er kort sem sýnir upphafsstað göngu og leiðina þangað.

 

19.1.2012

Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands kemur út 24. janúar

Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands kemur út 24. janúar nk og er þá dreift í pósti til allra félagsmanna sem og birtist á heimasíðu félagsins og fer í dreifingu með Morgunblaðinu.

18.1.2012

Fjall mánaðarins í janúar er Helgafell ofan Hafnarfjarðar.

Fyrsta ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2012 á vegum Ferðafélags Íslands verður  farin laugardaginn 28. janúar.



Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Um FÍ » Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag