Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

Fréttir - RSS

26.1.2012

Ferðaáætlun 2012 komin út - Fjölbreytt sumardagskrá framundan segir Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefndar

Með orkuna undir iljunum

 

Sigrún-Valbergsdóttir-200
Sigrún Valbergsdóttir varaforseti FÍ

„Þegar við hefjumst handa í lok hvers sumars við að undirbúa gönguferðir næsta sumars erum við enn með orkuna undir iljunum og margar góðar og spennandi hugmyndir. Við reynum að finna ný svæði á hverju ári án þess að gleyma ferðunum sem hafa notið vinsælda á undanförnum árum. Svo þarf að finna gott leiðsögufólki ssegir Sigrún Valbergsdóttur, formaður ferðanefndar Ferðafélags Íslands.Það er að mörgu að hyggja,“

Margar nýjungar

Ferðaáætlunin skiptist í nokkra flokka. Sumarleyfisferðirnar eru vinsælastar, þær verða hátt í fjörutíu talsins næsta sumar. Þar er um að ræða gönguferðir; fjögurra til átta daga og má þar nefna ferðir um Hornstrandir, Laugaveginn og Þjórsárver.

„Í þessar ferðir og fleiri hafa margir sótt. Almennt má segja að við höfum það að leiðarljósi að bjóða margar nýjungar í ferðaáætlun hvers árs, enda stækkar hópurinn sem fer í þessar ferðir ár frá ári. Við reynum að nýta skála félagsins eins og hægt er í ferðunum, en þeir eru hátt í 40 víða um landið,“ segir Sigrún.

Topphopp á Nesinu

Meðal ferða í áætlun FÍ sem hafa verið að festa sig í sessi eru t.d. Fossgangan svonefnda, en þá er gengið að Fossunum efst í Þjórsá. Af nýjum og spennandi helgarferðum má nefna þriggja daga skíðaferð á Snæfjallaströnd um Hvítasunnuna. Í þeirri ferð verður gengið frá Dalbæ yfir Drangajökul og komið niður í Reykjafjörð nyrðri. Þetta er þriggja daga skíðaferð Þá er Toppahopp er skemmtileg nýjung þar sem Brynhildur Ólafsdóttir fer með göngugarpa á Snæfellsnesið.

Sigrún segir að í flokki dagsferða sé líka mikil fjölbreytni, en þar er einnig boðið uppá erfiðar og krefjandi ferðir fyrir hörku fjallagarpa en þær séu sniðnar að vönu göngufólki.  Morgungöngurnar sem eru á dagskrá í apríl og byrjun maí hafa notið hylli fólks og þá hafi ferðir sem FÍ og Háskóli Íslands standa að í sameiningu verið að festa sig í sessi, en í þeim ferðum er farið um áhugaverðar slóðir í nágrenni höfuðborgarinnar þar sem fræðimenn skólans miðla af viskubrunni sínum.

Þátttakan verður góð

„Já, ég held að allir eigi að finna eitthvað við sitt hæfi, enda erum við með allt landið undir. Fjölbreytnin er ofarlega á blaði hjá ferðanefndinni og áhugaverðar nýjungar, svo ég er viss um að þátttakan í ferðum ársins verður góð, rétt eins og undanfarin ár,“ segir Sigrún Valbergsdóttur, formaður ferðanefndar FÍ.

Forsida-2012-200
Skoða áætlunina >>

 



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Um FÍ » Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages


Mynd

Sumarleyfisferð í Héðinsfjörð

Veldu ferðafélag