Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Hringsjár

  

 

Um Hringsjár

Landslag yrði lítils virði ef það héti ekki neitt.

Það er örugglega rétt hjá skáldinu Tómasi Guðmundssyni að nafn gefur stað sérstakt gildi a.m.k. í huga Íslendinga.  

Það varð  þegar á árdögum Ferðafélags Íslands eitt verkefna þess að setja upp hringsjár til að auðvelda fólki að læra nöfn fjalla og annarra kennileita.  

Fyrsta hringsjáin var sett á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi árið  1938 .  Þaðan blasir við mikill og fagur fjallahringur.  Á skífunni á Valhúsahæð eru 80 staðarnöfn.  

Hringsjár Ferðafélagsins og deilda þess eru nú 15.   Sjálfboðaliðar hafa mjög komið að gerð og uppsetningu hringsjánna.  Flestar þeirra eru teiknaðar af Jóni Víðis, landmælingamanni, sem var óþreytandi í störfum sínum fyrir félagið.  Á  Þverfellshorni Esju er skífa, sem Jakob Hálfdanarson teiknaði og gaf teikninguna Ferðafélaginu í minningu Jóns Víðis.

 


Hringsjár Ferðafélags Íslands:

 

  • Valhúsahæð
    á Seltjarnarnesi

  • Vífilsfell

  • Hakið á Þingvöllum,
    ofan Almannagjár

  • Hamarskotsklappir
    á Akureyri

  • Kambabrún
    við gamla veginn

  • Fróðhúsaborg
    hjá Svignaskarði

  • Jónasarlundur
    í Öxnadal

  • Geirsalda
    á Kili

  • Grímshóll
    á Vogastapa

  • Húsavíkurfjall

  • Valahnúkur
    í Þórsmörk

  • Miðmorgunsalda
    í Veiðivötnum

  • Bláhnúkur
    við Landmannalaugar

  • Þverfellshorn
    á Esju

  • Uxahryggir


Smelltu á kortið og kallaðu fram yfirlitsmynd


Hringsjá á Valhúsahæð


Hringsjá á Þverfellshorni á Esju

 




Á Valahnúk.
Einar Guðjohnsen fv. framkvæmdastjóri Ferðafélagsins með skóflu í hönd.

 



Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Um FÍ » Hringsjár

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages


Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag