Útgáfa
Ferðafélag Íslands er umfangsmesti útgefandi fróðleiks um ferðalög á Íslandi.
Á hverju ári er gefin út árbók sem fjallar með ítarlegum hætti um afmörkuð, en áhugaverð svæði á Íslandi. Árbækurnar gefa í senn ferðafólki góðar ferðaupplýsingar og veita einnig innsýn í sögu og þjóðlegan fróðleik.
Ferðafélagið kemur einnig að útgáfu ýmiskonar smærri rita og handbóka ár hvert. Hér má finna upplýsingar um útgefið efni um einstök svæði og einnig er hægt að panta með einföldum og þægilegum hætti það efni sem áhuga vekur.
Árbækur
Ferðafélag Íslands gaf út sína fyrstu árbók árið 1928. Árbókin hefur síðan komið út árlega í óslitinni röð og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Hver bók fjallar venjulega um tiltekið afmarkað svæði á landinu og nær nú efni þeirra um landið allt, víða í annað eða jafnvel þriðja sinn. Árbækur Ferðafélagsins, 79 að tölu, eru því í raun altæk Íslandslýsing á meira en tólf þúsund blaðsíðum.
Ferðafélagið hefur alla tíð kostað kapps um að gera árbækur sínar sem best úr garði og jafnan fengið heimamenn á hverjum stað og aðra sérfræðinga til liðs. Þannig hefur verið reynt að gera alla texta- og heimildarvinnu sem traustasta. Mikinn fróðleik um náttúrufar er að finna í bókunum, gróður, fugla og aðra landsins prýði, en ekki síst um jarðfræði og myndunarsögu landsins. Saga og menning skipa háan sess í umfjöllun um byggðirnar.
Ljósmyndir hafa verið í bókunum frá upphafi og hefur félagið notið liðs ágætra landslags- og náttúrulífsljósmyndara. Framfarir í ljósmyndatækni og prentun hafa skilað sér í fallegri bókum. Sést vel í ritröðinni hvernig bækur hafa skipt um útlit og hönnun eftir kröfum tímans.
Rit
Á liðnum árum hefur Ferðafélag Íslands staðið að útgáfu handhægra fræðslu- og upplýsingarita. Ritin eru í þægilegu broti svo auðvelt er að hafa þau meðferðis í lengri og skemmri ferðir.
Upplýsingarnar eru settar fram í stuttum köflum svo auðvelt er að finna lýsingar og fróðleik sem við á hverju sinni. Ritin benda á leiðir sem ekki eru á allra vitorði og leiða þannig göngumenn á nýjar slóðir. Einnig gera þau gönguferðirnar ánægjulegri og eftirminnilegri þar sem fróðleikurinn skapar skemmtilegar tengingar við atburði og sögur úr fortíðinni.
Fræðslurit FÍ:
Gönguleiðir upp úr botni Hvalfjarðar - Leifur Þorsteinsson
Biskupaleið yfir Ódáðahraun - Ingvar Teitsson
Eyjar í hraunhafi - Sigurður Kristinsson
Í náttúrunnar stórbrotna ríki - Ingólfur Einarsson
Stundir á Ströndum - Haukur Jóhannesson
Leiðir skálholtsbiskupa um Lyngdalsheiði - Guðrún Ása Grímsdóttir
Laugavegurinn - Leifur Þorsteinsson og Guðjón Magnússon
Fornar hafnir á Suðvesturlandi - Jón Þ. Þór
Aftökustaðir í landnámi Ingólfs - Páll Sigurðsson
Selvogsgata og Krísuvikurleiðir - Ólafur Þorvaldsson
Þórisdalur og ferð prestanna - Eysteinn Sigurðsson
Fjallgönguleiðir kringum Reykjavík - Eysteinn Sigurðsson
Fjallvegafélagið - Páll Sigurðsson
Fótgangandi um fjallasali, gönguleiðir á Kili - Arnór Karlsson
![]()
![]()
Öll fræðslurit FÍ fást á skrifstofu
Skoða úrval bóka og rita hér í vinstri dálknum
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd
























