Kjartan Ólafsson - Árbók
Kjartan Ólafsson Kjartan Ólafsson fyrrv. ritstjóri, f. 1933 í Súgandafirði. Háskólanám í Reykjavík og Vínarborg, próf í sagnfræði og þýsku frá HÍ 1961. Einn af stofnendum og framkvæmdastjóri Samtaka hernámsandstæðinga 1960–62. Framkvæmdastjóri Sósíalistaflokksins 1962–68. Starfsmaður Alþýðubandalagsins 1969–72. Ritstjóri dagblaðsins Þjóðviljinn 1972–1978 og 1980–83. Alþingismaður 1978–79 og alloft varamaður á þingi 1974–85. Hefur unnið að sögurannsóknum frá 1983, birt m. a.: Verslunarsaga Vestur-Skaftfellinga I-III 1987–93. Áform Frakka um nýlendu á Íslandi, Napóleon prins á Íslandi, Saga 1986. Dýrafjarðarmálið, Jón forseti og Ísfirðingar á öndverðum meiði, Saga 1987. Ár 1856, Evrópustyrjöld hótað vegna Dýrafjarðar. Í: Vestanglæður, afmælisrit. Útg. Sögufél. Ísfirðinga 2004.
Höfundur árbókar 1999, Firðir og fólk 900–1900. Vestur-Ísafjarðarsýsla. Bls. 1–588. (Ritið upphaflega samið fyrir Búnaðarsamband Vestfjarða og gefið út í samstarfi við það.)

















