Björn Hróarsson - Árbók
Björn Hróarsson Björn Hróarsson jarðfræðingur, f. 1962. Nám í jarðfræði og hellafræði við Háskóla Íslands, lokapróf 1986. Einkum unnið við ritstörf, blaðamennsku, ljósmyndun, vefsíðugerð, hönnun, umbrot, markaðssetningu og framkvæmdastjórn, svo sem við útgáfufyrirtækin Gott mál og Nordic Book, vefveituna Randburg o. fl. . Stofnandi útgáfufyrirtækisins Pjaxa 1996 og framkvæmdastjóri þess síðan. Ritstjóri tímaritsins Þroskahjálp frá 1992. Fjölmargar greinar í blöðum og tímaritum. Helstu rit: Hraunhellar á Íslandi, 1990. Hverir á Íslandi, 1991, (ásamt Sigurði Sveini Jónssyni. Á ferð um landið, leiðsagnarrit um ýmis héruð Íslands, 6 bækur 1994 og 1995. Gulur, rauður, grænn og blár, ferðahandbók barnanna, 2002.
Höfundur árbókar FÍ 1992, Norðan byggða milli Eyjafjarðar og Skjálfanda, bls. 1–238. Lagði til allar ljósmyndir og sá um umbrot. – Átti margar ljósmyndir í árbók FÍ 1998 og sá um umbrot, braut einnig um árbækur FÍ 1993 og 1999.

















