Hörður Kristinsson - Árbók
Hörður Kristinsson Hörður Kristinsson grasafræðingur, f. 1937. Nám í líffræði við háskólann í Göttingen, Þýskalandi, doktorspróf í grasafræði 1966. Flétturannsóknir í Bandaríkjunum 1967-1970. Við Náttúrugripasafnið á Akureyri 1970-77, síðan prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands til 1987. Frá 1987 forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar Norðurlands á Akureyri, síðar Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnunar Íslands, til 1999, eftir það í ýmsum sérfræðistörfum hjá Náttúrufræðistofnun. Hefur ritað fjölda rannsóknaskýrslna og fræðigreina. Meðal rita: Plöntuhandbókin, blómplöntur og byrkningar, 1986. Ensk útgáfa 1987, þýsk útgáfa 1991.
Greinar um gróðurfar í árbókum FÍ: 1984 Um gróður á Reykjanesskaga bls. 113–125; 1991 Gróður [um fjallagróður milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar] bls. 7–20; 2000 Gróðurfar á Tröllaskaga og skaganum austan Eyjafjarðar (ásamt Helga Hallgrímssyni) bls. 129–133. Lét í té myndir í greinarnar 1984 og 1991, einnig ljósmyndir í annað efni 1991-árbókar og í 1990-árbók. – Í Ferðum, riti Ferðafélags Akureyrar, 1978 bls. 33–38, greinin Fjallagróður við Glerárdal.
Skiptimarkaður
Leit
Mynd

















