Hjörleifur Guttormsson - Árbók
Hjörleifur Guttormsson Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur, f. 1935 á Hallormsstað. Líffræðinám í Leipzig, lokapróf 1963. Kennari í Neskaupstað 1964–73. Starfaði að náttúrurannsóknum 1968–78, frumkvöðull að Safnastofnun Austurlands, forstöðumaður Náttúrugripasafns í Neskaupstað frá stofnun til 1978. Í náttúruverndarráði 1972–78. Alþingismaður 1978–99, iðnaðarráðherra 1978–79 og 1980–83. Í Þingvallanefnd 1980–92. Frá 1999 ritstörf og rannsóknir. Áhugaljósmyndari. Helstu rit: Vistkreppa eða náttúruvernd 1974 (rituð 1970–73). Leyndardómar Vatnajökuls (ásamt Oddi Sigurðssyni) 1997. Fjölmargar rannsóknarskýrslur í náttúrufræði, álitsgerðir, greinar í blöðum og tímaritum um fjölbreytileg viðfangsefni.
Árbækur Ferðafélags, texti og ljósmyndir: 1974 Austfjarðafjöll, bls. 1–187. 1987 Norð-Austurland, hálendi og eyðibyggðir, bls. 1–218. 1993 Við rætur Vatnajökuls, byggðir fjöll og skriðjöklar, bls. 1–264. 2002 Austfirðir frá Álftafirði til Fáskrúðsfjarðar, bls. 1–345.

















