Bjarni Guðmundsson - Árbók
Bjarni Guðmundsson Bjarni Guðmundsson, f. 1943, búvísindamaður frá Kirkjubóli í Dýrafirði. Búfræðingur 1962 og búfræðikandidat 1965 frá Bændaskólanum á Hvanneyri. Framhaldsnám í búvísindum við Landbúnaðarháskólann á Ási í Noregi, licienciat (dr. scient.) 1981. Hefur starfað sem kennari við Bændaskólann á Hvanneyri frá 1973 og prófessor við Landbúnaðarháskólann þar frá 1999; forstöðumaður búvélasafns. Hefur ritað fjölda greina um landbúnaðarmál. Starfað í opinberum nefndum að landbúnaðarmálum, er formaður stjórnar Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Í stjórn Snorrastofu í Reykholti, formaður.
Höfundur þáttar í árbók FÍ 2000, Í kringum Kaldbak á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Bls. 6–43.

















