Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Haukur Jóhannesson - Árbók

asdasd

Haukur Jóhannesson

Haukur Jóhannesson jarðfræðingur, f. 1948. Jarðfræðinám í Reykjavík  og Durham á Englandi, doktorspróf 1975. Við jarðfræðirannsóknir hjá Orkustofnun, Náttúrufræðistofnun og Íslenskum orkurannsóknum. Höfundur fjölmargra rannsóknarskýrslna og greina um jarðfræði. Í stjórn Ferðafélags Íslands 1995–2004, forseti frá 1997 til 2004.

Höfundur þáttar í árbók FÍ 2000, Lesið í landið í Árneshreppi á Ströndum. Bls. 44–117. Sá þáttur gefinn út í sérriti árið 2001 með titlinum: Stundir á Ströndum, frá Kolbeinsvík norður á Geirhólm. Bls. 1–88. – Einnig höfundur jarðfræðiþátta í árbókum FÍ 1982 um Snæfellsnes, bls. 151–172; 1991 um ‚Tröllaskaga‘, bls. 38–56;1997 um hálendi Mýrasýslu og yfir til Dala, bls. 215–226. – Sá um útgáfu á korti af Landmannalaugasvæðinu 2003 og örnefnasetti það. Höfundur fjölrita á vegum FÍ um jarðfræði Snæfellsness, almennrar leiðarlýsingar úr Reykjavík norður á Strandir og fleiri leiðsagnarrita.



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Útgáfa » Árbækur FÍ » Höfundar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag