Valgarður Egilsson - Árbók
Valgarður Egilsson Valgarður Egilsson læknir og rithöfundur, f. 1940 á Grenivík við Eyjafjörð. Læknispróf HÍ 1968. Við rannsóknir í London í frumulíffræði krabbameins . Doktorsgráða frá University College London 1978. Við krabbameinsrannsóknir á Rannsóknastofu í Meinafræði (Landspítala) frá 1979, frumulíffræðideild, yfirlæknir þar. Kennsla í frumulíffræði 1979–1984 við Læknadeild HÍ. Klíniskur prófessor við Háskóla Íslands. Ritstörf: Fjölmargar vísindagreinar í erlendum tímaritum. Einnig samið bókmenntaverk s. s. Dags hríðar spor, leikrit 1980; Ferjuþulur, 1985; Dúnhárs kvæði, 1988; Waiting for the South Wind, skáldsaga, 2001. – Formaður frkvstj. Listahátíðar í Reykjavík 1990 og 1994. Varaforseti Ferðafélags Íslands frá 1997. Fararstjóri í eyðibyggðum norðanlands. Höfundur meginþáttar í árbók 2000, Úthafsbyggðir Mið-Norðurlands. Bls.118-283.
Skiptimarkaður
Leit
Mynd

















