Gísli Sigurðsson - Árbók
Gísli Sigurðsson Gísli Sigurðsson blaðamaður, f. 1930 í Úthlíð í Biskupstungum. Samvinnuskólapróf 1953, einnig nám við Íþróttaskólann í Haukadal og Handíða- og myndlistaskólann. Í blaðamennsku frá 1955. Ritstjóri Vikunnar 1959–67. Stýrði Lesbók Morgunblaðsins 1967–2000, ritaði þar um mál af fjölbreytilegasta tagi, ekki síst um sjónlistir. Hefur stundað málaralist í tómstundum og haldið fjölmargar sýningar á verkum sínum. Einnig þekktur af ljósmyndun. Eftir starfslok á Morgunblaðinu hefur hann gefið út ljósmynda- og landlýsingabækur í ritröðinni Seiður lands og sagna.
Höfundur árbókar 1998, Fjallajarðir og Framafréttur Biskupstungna, bls. 1–245. Lagði til flestar ljósmyndir bókarinnar.

















