Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ágúst Guðmundsson - Árbók

asdasd

Ágúst Guðmundsson

Ágúst Guðmundsson jarðfræðingur, f. 1949 í Dýrafirði. Háskólanám í jarðfræði við Háskóla Íslands, BS-próf 1976, viðbótarnám og próf í jarðlagafræði 1978. Jarðfræðingur hjá Orkustofnun 1977–90 og síðan sjálfstæð starfsemi og rekstur fyrirtækja á sviði jarðfræðirannsókna, einkum vegna vatnsaflsvirkjana og jarðganga. Fjölmargar rannsóknarskýrslur og jarðfræðigreinar. Frerafjöll og urðarbingir á Tröllaskaga, ópr. meistaraprófsritgerð, 2000. Áhugaljósmyndari og hafa myndir birst víða og þó í mestu magni á einum stað í Íslandshandbók Arnar og Örlygs. Virkur í björgunarsveitastarfi í nær aldarþriðjung, aðaláhugamál fjöll og jarðfræði. Greinar í tímarit um náttúru og sögu afskekktra svæða.

Höfundur árbókar FÍ 1996, Ofan Hreppafjalla, milli Hvítár og Þjórsár í Árnessýslu; ásamt ágripi af jarðsögu héraðsins, virkjunarsögu Þjórsár og lýsingu á Þjórsárdal og fornbýlum þar. Bls. 1–242. Lagði einnig til allar ljósmyndir, landsuppdrætti og skýringarteikningar. Gerði landsuppdrætti og skýringarteikningar í árbók FÍ 1995. Á ljósmyndir í árbókum 1990, 1991, 1994–1996, 1999–2001.



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Útgáfa » Árbækur FÍ » Höfundar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag