Arnór Karlsson - Árbók
Arnór Karlsson Arnór Karlsson bóndi, f. 1935. Stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1958. Nám við háskóla í Þýskalandi. Kenndi um skeið við Íþróttaskólann í Haukadal, barnaskóla í Biskupstungum og á Laugarvatni, einnig í Iðnskólanum á Selfossi og Skálholtsskóla. Bóndi í Biskupstungum 1960–2003. Í hreppsnefnd Biskupstungnahrepps frá 1970 til 1986. Í stjórn Ungmennafélags Biskupstungna um tíma, formaður í 3 ár. Hefur ásamt öðrum haldið úti blaði Ungmennafélagsins, Litli-Bergþór, um áratugi. Starfað að félagsmálum bænda, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda 1991–1997. Ritaði ásamt öðrum um Biskupstungur í Sunnlenskar byggðir I 1980, útg. Búnaðarsamband Suðurlands.
Höfundur meginefnis í árbók FÍ 2001, Kjölur og kjalverðir, og nefnist þáttur hans Á Kili. Bls. 6–183. Lagði til fjölmargar ljósmyndir í bókina. Setti saman smáritið Fótgangandi um fjallasali, 12 gönguleiðir á Kili, sem Ferðafélagið gaf út 1998, og lagði til allar ljósmyndir. Bls. 1–32.
Skiptimarkaður
Leit
Mynd

















