Oddur Sigurðsson - Árbók
Oddur Sigurðsson Oddur Sigurðsson jarðfræðingur, f. 1945. Nám í jarðfræði við Háskólann í Uppsölum 1965–71, fil. kand. próf. Starfað hjá Orkustofnun frá 1971, ekki síst að jöklamælingum og skyldum viðfangsefnum. Höfundur fjölmargra rannsóknarskýrslna um jarðfræði og jökla. Áhugaljósmyndari. Greinar og myndir í Náttúrufræðingnum, Heima er best og víðar til kynningar á landi og náttúru Íslands. Höfundur ásamt Hjörleifi Guttormssyni: Leyndardómar Vatnajökuls 1997. Einn höfunda og aðalljósmyndari bókarinnar Dulin veröld, smádýr á Íslandi, 2002. Útgefandi ásamt öðrum að jöklariti Sveins Pálssonar á ensku, Icelandic Ice Mountains, 2004.
Höfundur þáttar í árbók FÍ 2001, Kjalverðir – jöklar við Kjöl, bls. 184–223. Lagði einnig til ljósmyndir í þáttinn. Á ljósmyndir í árbókum FÍ 1991, 1994 og 2003.

















