Guðrún Ása Grímsdóttir - Árbók
Guðrún Ása Grímsdóttir Guðrún Ása Grímsdóttir sagnfræðingur, f. 1948 á Apavatni í Grímsnesi. Cand. mag.-próf í miðaldasagnfræði við HÍ 1979. Hefur unnið við útgáfu- og fræðistörf, lengst af við Árnastofnun í Reykjavík. Meðritstjóri fornmálsorðabókar í Kaupmannahöfn 1990–92. Höfundur fjölmargra fræðigreina í sagnfræði og textafræði. Meðal útgáfurita: Mannlíf í Grunnavíkurhreppi, þættir úr byggðarsögu 1987. Annálar 1400–1800 VI 1987. Biskupasögur III 1998. Oddaannálar og Oddaverjaannáll (ásmt Eiríki Þormóðssyni) 2003.
Höfundur árbókar FÍ 1994, Ystu strandir norðan Djúps, um Kaldalón, Snæfjallaströnd, Jökulfirði og Strandir. Bls. 1–270. Höfundur þáttarins Opnast land til fjalla frammi upp af Mýrum og Hnappadal, bls. 6–125, í árbók FÍ 1997. Höfundur þáttarins Um Grímsnesafrétt í árbók FÍ 2003, bls. 216–233. Smárit á vegum Ferðafélagsins árið 2000: Leiðir Skálholtsbiskupa um Lyngdalsheiði, texti og flestar ljósmyndir, bls. 1–63.
Skiptimarkaður
Leit
Mynd

















