Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Árni Björnsson - Árbók

asdasd

Árni Björnsson

Árni Björnsson þjóðháttafræðingur, f. 1932 í Dölum vestur. Cand. mag. í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1961. Dr. phil. í menningarsögu frá Háskóla Íslands 1995. Lektor í íslensku við háskóla í Þýskalandi 1961-1962 og 1963-1965. Önnungur við Handritastofnun Íslands 1965 til 1968. Kennari við MR 1965-69. Stundakennari við HÍ öðru hverju frá 1972. Forstöðumaður þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns Íslands 1969-2002. Í stjórn Kvikmyndasafns Íslands1978–1990, í útvarpsráði 1983–1987, í þjóðminjaráði frá 1991. Í ritnefnd árbókar Ferðafélagsins frá 1987. Meðal rita: Jól á íslandi,1963; Þorrablót á Íslandi, 1986; Hræranlegar hátíðir, 1987; Íslenskt vættatal, 1990; Saga daganna, 1993; Merkisdagar á mannsævinni,1996; Wagner á Íslandi, 2000. Séð um útgáfu á ýmsum fornritum og ritum Þjóðminjasafns. Fjölmargar blaðagreinar, ritgerðir og þýðingar.

Höfundur þáttarins Eyjar í Snæfellsnes- og Dalasýslum í árbók FÍ 1989 sem fjallaði um Breiðafjarðareyjar. Höfundur annars meginþáttar árbókar FÍ 1997, Dalaheiði kringum hæl Hvammsfjarðar frá Krosshellu að Guðnýjarsteinum, bls. 126–214.



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Útgáfa » Árbækur FÍ » Höfundar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferð í Héðinsfjörð

Veldu ferðafélag