Árni Hjartarson - Árbók
Árni Hjartarson Árni Hjartarson jarðfræðingur, f. 1949, frá Tjörn í Svarfaðardal. Jarðfræðinám við Háskóla Íslands, BS-próf 1973, meistarapróf í vatnajarðfræði 1994. Doktorspróf frá Kaupmannahafnarháskóla 2004. Starfsferill hjá Orkustofnun frá 1976, frá 2003 Íslenskum orkurannsóknum, einkum við vatnajarðfræðirannsóknir og jarðfræðikortagerð. Höfundur fjölmargra rannsóknarskýrslna og greina um jarðfræði. Höfundur (ásamt Hallgerði Gísladóttur og Guðmundi J. Guðmundssyni) ritsins Manngerðir hellar á Íslandi, 1991 og (með Helga M. Sigurðssyni og Reyni Vilhjálmssyni) Elliðaárdalur, land og saga, 1998. Hefur samið leikrit, ljóð og söngva, einkum fyrir Hugleik.
Höfundur árbókar FÍ 1995, Á Hekluslóðum, bls. 1–121 og 134–236. Lagði einnig til margar ljósmyndir.
Skiptimarkaður
Leit
Mynd

















