Ferð: Hengill og Skeggi

Suðvesturland

Hengill og Skeggi

FÍ Ung
Lýsing

Við sameinumst í bíla klukkan 16:00 í Mörkinni 6 og keyrum að Hengissvæðinu þar sem við toppum Skeggja og könnum svæðið. Góð ganga fyrir alla á fallegu svæði nálægt höfuðborginni.

Þátttaka ókeypis fyrir félagsmenn FÍ Ung.

Brottför/Mæting
kl. 16 Mörkinni 6
Fararstjórn

Gunnhildur Fríða

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Skráning í FÍ Ung

Hægt er að skrá sig í FÍ Ung með því að smella Hér