Ferð: Í faðmi Fjallabaks

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Hálendið

Í faðmi Fjallabaks

Lýsing

Í þessari ferð hafa þátttakendur bækistöð í skála Ferðafélags Íslands í Hvanngili og fara þaðan í rannsóknarleiðangra um lítt þekkta afkima á Fjallabaki. Þátttakendur ferðast saman á staðinn með allan farangur í rútu frá Reykjavík.

Brottför/Mæting
kl.16 með rútu frá Reykjavík.
Fararstjórn

Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.

Innifalið
Rúta, gisting og farastjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Leiðarlýsing

1.d., föstud. Brottför úr Reykjavík kl. 16. Ekið um Suðurland og inn Fljótshlíð sem leið liggur í Hvanngil. Áætluð koma þangað er um kl. 19. Hópurinn kemur sér fyrir í skálanum og tekur létta kvöldgöngu um kvöldið.
2.d. Eftir morgunmat er haldið af stað í leiðangur inn Hvanngil milli Ófæruhöfða og Útigönguhöfða á svæði sem kallast "fyrir norðan Höfða." Þaðan liggur leiðin upp í fjöllin að brúnum og þaðan austur að Einstigisgili. Svo förum við meðfram Mangagili niður í Kaldaklof, suður með Einstigsfjalli og Sléttafelli og eftir svokölluðum Strútsstíg gegnum Hvanngilshnausa aftur í Hvanngil. Stórbrotið landslag og fáfarnar slóðir að mestu á slóðum sauðkindarinnar. Vegalengd um 20 km og 700 metra hækkun.
3.d. Eftir morgunmat er haldið úr skála meðfram Kaldaklofskvísl til norðurs, yfir Bratthálskvísl og gengið á Brattháls og eftir honum endilöngum meðfram Álftavatni. Síðan niður Klámbrekku og vestur sanda að Torfahlaupi í Markarfljóti.
Þaðan er haldið til baka að Bratthálsi í Stígsver og þar skal vaðið yfir Kaldaklofskvísl og gengið um skörð og gil vestan við Stórusúlu og hálfhring um fjallið aftur í Hvanngil. Vaða þarf þrisvar sinnum yfir daginn.Vegalengd 17 km og ca. 300 metra hækkun.
4.d. Eftir morgunmat taka menn saman farangur sinn og skilja hann eftir í Hvanngili í góðu skipulagi. Hópurinn gengur suður sanda, yfir Innri-Emstruáá brúnni og stefnir á Stórkonufell. Gengið verður á fjallið sem mjög fáir hafa gert. Síðan haldið niður á sand aftur og við Útigönguhöfða tekur rútan hópinn um kl. 14.00 en hefur áður farið í Hvanngil og tekið farangur okkar. Vegalengd 11 km og 300 metra hækkun.
Ekið til Reykjavíkur með stuttum stoppum á áhugaverðum stöðum. Komið til Reykjavíkur um kl. 18.