Ferðafélag barnanna safnar sveppum 1. september

Ferðafélag barnanna safnar sveppum 1. september n.k. Vinsamlegast athugið að um breytta dagsetningu er að ræða, ferðin var áður fyrirhuguð 25. ágúst.

Sveppir eru sælgæti en það er betra að þekkja þá góðu frá þeim vondu og eitruðu! Gísli Már Gíslason og fleiri sveppasérfræðingar frá Háskóla Íslands kenna okkur að þekkja matsveppi og aðferðir við að geyma þá og matreiða í fjörugri sveppagönguferð.

Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát. Ekið í halarófu frá bílastæðinu við Rauðhóla lengra inn í Heiðmörkina. Gera má ráð fyrir að ferðin í heild sinni taki um 2 klst.

Hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta!

Nánari upplýsingar