Hlaðvarp FÍ - Næring á fjöllum

Áttaviti Ferðafélags Íslands er hlaðvarp Ferðafélagsins. í þessum þáttum förum við um víðan völl, og ræðum við sérfræðinga um allt sem tengist ferðamennsku og öryggi á fjöllum. Hægt er að nálgast þættina hér að neðan, og einnig í snjalltækjum í gegnum hin ýmsu podcast eða hlaðvarpsforrit. Þú getur til dæmis hlaðið niður þáttum í símann þinn og hlustað hvar og hvenær sem er.

 

Næring á fjöllum - Anna Sigríður Ólafsdóttir, Auður Elva Kjartansdóttir og John Snorri Sigurjónsson

Í þættinum reynum við að svara algengum spurningum eins og hverju þurfi að huga að þegar kemur að næringu á fjöllum, samsetningu máltíða, vökvastjórnun, hvað við eigum ekki að taka með okkur sem og algeng mistök sem fólk gerir varðandi næringu og máltíðir á fjöllum.

Gestir okkar eru þau Anna Sigríður Ólafsdóttir, kölluð Anna Sigga, Prófessor í næringafræði við Háskóla Íslands. Auður Elva Kjartansdóttir, sérfræðingur í ofanflóðum með mikla reynslu leiðsögumaður og af störfum í björgunarsveit. Auður hefur einnig gengið oftast kvenna á Hvannadalshnúk eða um 80 sinnum. John Snorri Sigurjónsson er einnig gestur okkar en hann er fyrsti og eini íslendingurinn sem hefur gengið á K2, en K2 er eitt hættulegasta fjall í heimi. John náði þeim stórkostlega árangri að fara á þrjú fjöll sem eru yfir 8.000 há á aðeins 80 dögum.