Lýðheilsugöngur FÍ - gengið í öllum landslutum í september

Gengið verður í öllum landslutum í september í Lýðheilsugöngum FÍ.  Um er að ræða ókeypis göngur vítt og breitt um landið.

„Göngurnar verða alla miðvikudaga í september og hefjast þær kl. 18.  Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka  u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði,“ segir Ólöf Sívertsen sem hefur yfirumsjón með göngunum.

Vonandi reima sem flestir á sig gönguskóna með okkur á miðvikudögum í september, fara út í náttúruna og njóta fallega landsins okkar.

LIFUM OG NJÓTUM!

Nánari upplýsingar eru að finna á vefsíðunni fi.is/lydheilsa