WFR námskeið - Vettvangshjálp í óbyggðum, örfá sæti laus

Námskeiðið Vettvangshjálp í óbyggðum / Wilderness First Responder (WFR) er 76 klst. sérhæft námskeið í vettvangshjálp, ætlað þeim sem starfa fjarri almennri bráðaþjónustu og gætu verið í þeirri aðstöðu að bera ábyrgð á hópi eða sjúklingi. Af þeim sökum hentar námskeiðið til dæmis vel þeim sem eru leiðsögumenn í óbyggðum.

Á námskeiðinu er farið er yfir það hvernig veikindi og áverkar eru metin, ásamt því hvaða meðferð hægt er að beita. Einnig er fjallað mikið um forvarnir. Nemendur læra að nota tilbúinn sjúkrabúnað ásamt því að leika af fingrum fram og nota til dæmis hefðbundinn útivistarbúnað sem sjúkrabúnað. Nemendur sem lokið hafa námskeiðinu eiga að vera tilbúnir til að vera sérfræðingar í fyrstu hjálp innan síns hóps, hvort sem um björgunaraðgerð er að ræða eða í ferðalögum í óbyggðum. 

Kennsluaðferðirnar fela meðal annars í sér fyrirlestra, heimaverkefni og verklega kennslu.  Nemendur fá í hendurnar kennslubækur á  fyrsta degi eða  sendar  í aðdraganda námskeiðsins.

Námskeiðið er kennt dagana 18.-21. okt. og 25.-28. okt., alls 8 dagar, skipt upp í 2 x 4 daga.
Kennt er frá kl. 08:00 og 18:00 alla dagana, fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag.

Athugið að skráningu lýkur mánudaginn 1. október.

Nánari upplýsingar og skráning