Fréttir úr starfi félagsins

Opnunartími skrifstofu

Skrifstofa FÍ er lokuð frá 23. des og fram yfir áramót.

Það er leikur að læra

Ferðafélag Íslands býður upp á fjölda áhugaverðra námskeiða í vetur. Þar kennir margra grasa fyrir þá sem vilja auka á þekkingu sína og efla öryggi sitt á fjöllum.

Láttu drauminn rætast

Árið 2021 býður Ferðafélag Íslands upp á mikinn fjölda hópverkefna um fjallgöngur og útivist af ýmsu tagi. Komdu með og láttu drauminn rætast

Það má opna pakkana

Ferðaáætlun FÍ fyrir 2021 er komin út og má segja að aðfangadagskvöld útivistarfólks sé runnið upp og tími til að opna pakkana. Allir fá þar eitthvað fallegt hvort sem þeir vilja stutta ferð eða langa, létta eða erfiða. Hér gildir máltækið: ekki missir sá sem fyrstur fær og ekki eftir neinu að bíða að tryggja sér pláss í draumaleiðangri sumarsins.

Umhverfisvæn ferðaáætlun FÍ 2021

Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands er nú í fyrsta skipti gefin út eingöngu á rafrænu formi og eiga allir aðgang að henni á heimassíðu félagsins fi.is. Þrjár aðalástæður eru fyrir þessu. Í fyrsta lagi hefur æ stærri hópur félagsmanna eingöngu nýtt sér áætlunina með nettengingu en slíkt má segja um lestur og margvíslega miðlun upplýsinga í seinni tíð s.s. í blaða- og bókaútgáfu, birtingu fréttabréfa, árskýrslu o.s.frv. Í öðru lagi vill Ferðafélagið leggja sitt af mörkum í umhverfismálum þ.á m. að draga úr pappírsnotkun sem óneitanlega er umtalsverð við prentun og útgáfu ferðaáætlunar í tugþúsunda tali. Í þriðja lagi sparast talsverð fjárupphæð með þessari dreifingaraðferð en félagið hefur leitað allra leiða til þess að draga úr rekstrarkostnaði vegna mikils tekjufalls svipað og aðrir rekstraraðilar ekki síst þeir sem starfa í ferðaþjónustu.

Mikið úrval ferða í ferðaáætlun FÍ 2021

,,Sígildar ferðir og nýjar í bland, sumarleyfisferðir, dagsferðir, helgarferðir og skíðaferðir, lýðheilsuverkefni, fjallaverkefni og hreyfihópar, sem og Ferðafélag barnanna, FÍ Ung og deildaferðir. Það eiga allir að geta ferðir við sitt hæfi, " segir Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefnda um nýútkomna Ferðaáætlun FÍ 2021.

Ferðaáætlun FÍ 2021

Ferðaáætlun FÍ 2021 birtist hér á heimasíðunni í dag og hefjast þá bókanir um leið. Ferðaáætlunin 2021 er óvenju glæsileg og hátt í tvöhundruð ferðir í áætluninni, allt frá gönguleiðum í byggð yfir á hæstu tinda. Sumarleyfisferðir, helgarferðir, dagsferðir, skíðaferðir, fjalla- og hreyfiverkefni sem og Ferðafélag barnanna og FÍ Ung og deildaferðir eru í áætluninni. Að venju eru bæði sígildar ferðir sem og nýjar ferðir og allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Fjallaverkefni FÍ 2021 í sölu

Fjallaverkefni FÍ 2021 eru komin í sölu. Hægt er að bóka í fjallaverkefnin á hér á heimasíðu FÍ undir Ferðir / fjalla- og hreyfiverkefni og eða hringja eða senda á póst á skrifstofuna í síma 568 - 2533 eða fi@fi.is. FÍ Alla leið, FÍ léttfeti, fótfrár og þrautseigur, FÍ Göngur og gaman, FÍ Fyrsta skrefið, FÍ Göngur og jóga, FÍ Hjól og fjall, FÍ Fjallatindar og þannig mætti lengi telja. Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi. Árið 2021 verður frábært ár til að ganga á fjöll.

Fjalla- og hreyfiverkefni FÍ 2021

Fjalla- og hreyfiverkefni FÍ 2021 verða kynnt á hér á heimasíðunni næstu daga og sala í verkefnin hefst þriðjudaginn 8. desember.

Fjallaspjallið með Vilborgu Örnu pólfara

Fjallaspjallið með Vilborgu Örnu pólfara er ný podcast þáttaröð sem Ferðafélag Íslands setur nú í loftið. Í fjallaspjallinu ræðir Vilborg Arna við fjallafólk, fararstjóra og fjallaleiðsögufólk sem segir frá ævintýrum á fjöllum, reynslu og upplifun.