Starfsmaður

Edith Ólafía Gunnarsdóttir

Edith Ólafía Gunnarsdóttir

Fararstjóri

Starfsheiti
employeesEmployeeMobile 615 4700

Edith er alin upp í Reykjavík en var mikið í Vestur-Húnavatnssýslu á yngri árum þar sem hún kynntist íslenskri náttúru og fjöllum. Hún fékk ferða- og fjallabakteríuna þegar hún byrjaði að ganga með Ferðafélagi Íslands fyrir mörgum árum og hefur tekið þátt í mörgum fjallaverkefnum og lengri ferðum með félaginu.

Edith er menntuð í sálfræði og geðheilbrigði. Hún er einnig með kennararéttindi í jóga og djúpslökun. Hún hefur fengist við farastjórn hjá Ferðafélagi Íslands síðan 2016 í fjallaverkefnum félagsins og lengri ferðum. Hún hefur lokið hluta af grunnþjálfun í Flugbjörgunarsveitinni og öðrum námskeiðum sem tengjast leiðsögn og vetrarfjallamennsku.

Þegar Edith er ekki á fjöllum starfar hún sem ráðgjafi og jógakennari hjá Hugarsetrinu.

Ómissandi í bakbokann

Gott súkkulaði og lopapils.

Uppáhalds leiksvæði

Langisjór og Lónsöræfi.