Ferð: Blákollur fyrir ofan Sandskeið

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Suðurland

Blákollur fyrir ofan Sandskeið

FÍ Kvöldgöngur
Lýsing

Skemmtilegur hringur þar sem gengið er upp á Blákoll sem er eitt af fjöllunum sem Svínahraun umlykur.
Fjöllin í kring þekkjum við sem kennileiti á leiðinni austur fyrir fjall. Öll þessi fjöll eru bæði tignarleg og skemmtileg að ganga á.
Saga og jarðfræði svæðisins er mikil og gerir svæðið ennþá meira heillandi. Ganga: um 6 km og hækkun: um 350 m.

Búnaður: Höfuðljós, góðir skór, vökvi og smá orka.

Þátttakendur hittast á bílastæðinu við skiltið sem minnir okkur á að hægja á okkur í umferðinni. Sjá kort hér

Brottför/Mæting
Kl. 18:00 frá upphafsstað göngunnar
Fararstjórn

Steinunn Leifsdóttir 

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki