Ferð: Smáþúfur í vesturhluta Esjunnar

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Suðvesturland

Smáþúfur í vesturhluta Esjunnar

FÍ Kvöldgöngur
Lýsing

Skemmtilegir tindar í vesturhluta Esjunnar. Þaðan sést yfir allt höfuðborgarsvæðið, Reykjanesið og svo hinn hluta Esjunnar sem spannar
ótrúlega stórt svæði með þeim mun fallegri tindum og giljum.
Ganga:  6,5km. Hækkun: um 560m.

Búnaður: Höfuðljós, góðir skór, vökvi og smá orka

Þátttakendur hittast á bílastæði við vikti, sjá kort hér

Brottför/Mæting
Kl. 18:00 frá upphafsstað göngunnar
Fararstjórn

Steinunn Leifsdóttir

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki