Flokkar

Vefverslun Ferðafélags Íslands

Á hverju ári gefur Ferðafélag Íslands út heimilda- og fræðslurit, kort og bækur, að ógleymdri árbók félagsins sem hefur komið út á hverju ári frá 1928 og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru.

Að auki selur FÍ margvíslegar aðrar vörur, eins og til dæmis armbönd sem gilda sem aðstöðugjald fyrir daggesti við hálendisskála Ferðafélagsins.

Hér að neðan má skoða allar þær vörur sem hægt er að panta í gegnum vefverslun FÍ. Við sendum hvert á land sem er.