Hrönn Vilhjálmsdóttir ný í stjórn FÍ

Hrönn Vilhálmsdóttir var kjörn í stjórn FÍ á aðalfundi féalgsins  í gær
Hrönn Vilhálmsdóttir var kjörn í stjórn FÍ á aðalfundi féalgsins í gær

Aðalfundur Ferðafélags Íslands var haldinn í gærkvöldi í sal FÍ Mörkinni 6. Ólöf Kristín Sívertsen forseti FÍ flutti skýrslu stjórnar og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir fjármálastjóri kynnti ársreikning félagsins. Rekstur félagsins árið 2023 var mjög traustur og var rekstrarafangur sem nemur 12 mrk. Ársreikningur var samþykktur samhljóða af fundargestum.

Hrönn Vilhjálmsdóttir var kjörin í stjórn félagsins til næstu þriggja ára. Hrönn er lögfræðingur að mennt og með gráðu í verkfræði og hefur starfað lengi með FÍ og sérstaklega Ferðafélagi barnanna þar sem hún leiðir starfið með manni sínum Herði Harðarsyni. Stjórn félagsins er nú skipuð þannig að Ólöf Krístín Sívertsen er forseti og Sigrún Valbergsdóttir varaforseti og auk þeirra eru Salvör Nordal, Elín Björg Jónasdóttir, Hrönn Vilhjálmsdóttir, Sigurður Ragnarsson, Tómas Guðbjartsson, Gísli Már Gíslason og Gestur Pétursson. 

Hrönn og maður hennar Hörður voru nýlega í viðtali hér að heimasíðu FÍ og fylgir það hér neðar: 

Einn allra skemmtilegasti anginn á sterkum meiði Ferðafélags Íslands er Ferðafélag barnanna. Síðustu árin hefur þessi litli félagsskapur stækkað, eflst og þroskast með mjög fjölbreyttum göngum sem sumar hverjar eru einfaldar í sniðum og stuttar en aðrar lengri þar sem meira reynir á hvern og einn. Félagið hefur notið mikilla vinsælda frá fyrsta degi enda hefur því verið stýrt af góðu fólki sem hefur haft það að markmiði að leiða börn og ungmenni út í hressandi göngur í íslenskri náttúru. Börnin mæta auðvitað ekki ein því þetta er hugsað þannig að öll fjölskyldan njóti útiverunnar í sameiningu. Höfuðmarkmið Ferðafélags barnanna er því ekki bara að hvetja börn og foreldra til útiveru heldur er samveran í náttúru landsins ríkur þáttur í starfinu. Þannig fá börnin að upplifa undur umhverfisins með fjölskyldunni sinni og það fylgir því sönn gleði að gera það í félagsskap með fleirum.

„Já, við leggjum mesta áherslu á gleði þegar gengið er með krökkum,“ segir Hrönn Vilhjálmsdóttir, sem nú ræktar þennan mikilvæga kvist á Ferðafélagstrénu. Það gerir hún ásamt eiginmanni sínum Herði Ingþóri Harðarsyni og börnun sínum tveimur , þeim Signýju og Sölva.

„Það atvikaðist þannig að okkur bauðst  fyrir rúmlega ári síðan að taka við keflinu í Ferðafélagi barnanna og við ákváðum eftir fjölskyldufund að slá til og takast öll á við þetta skemmtilega verkefni í sameiningu,“ segir Hrönn og brosir.

„Samvera fjölskyldunnar er mjög mikilvæg. Að fara út í góðum félagsskap að ganga eða leika sér, það styrkir marga þætti sem við viljum efla bæði hjá börnum og fullorðnum. Þetta er félagsleg samvera, útivist og hreyfing í einum pakka. Svo er ekki hjá því komist að ungir sem aldnir verða endurnærðir á líkama og sál eftir samveru í náttúrunni.“

 

 

Gleðin allsráðandi í gönguferðum

Hörður Ingþór, Hrönn og krakkanir eru engir nýgræðingar í FÍ enda hafa þau farið í óteljandi ferðir með Ferðafélagi barnanna undanfarin fjórtán ár og reyndar fylgt félaginu alveg frá því það var stofnað.

„Já, við höfum verið með alveg frá upphafi. Við byrjuðum allra fyrst þegar dóttir okkar var bara pínulítil og hún hefur hreinlega stækkað með félaginu. Við bárum reyndar börnin okkar fyrst með okkur í magapoka, svo í bakpoka, en nú ganga þau bara sjálf um fjöll og firnindi,“ segir Hörður og hlær.

„það þarf sko ekki mikið til að kveikja gleðina í þessu félagi þar sem krakkarnir eru án undantekninga mjög glaðir að vera úti í náttúrunni með öðrum krökkum á sviðuðu reki. Það er eiginlega skemmtilegast af öllu í ferðunum að sjá gleðina við hvert fótspor hjá börnunum. Þau eru snillingar í að vera í núinu og njóta þess að vera úti og sjá ævintýri í svo mörgu. Þau velta ekki fyrir sér veðrinu eða öðru sem við fullorðna fólkið erum oft að velta fyrir okkur.“

 

 

Skemmtilegt og stundum krefjandi

Hrönn segir að ferðirnar séu ekki allar léttar, þær geti því alveg tekið á og verið áskorun fyrir börnin og reyndar ekki síður fyrir þessi fullorðnu.

„En þegar þannig háttar er svo gott að hugsa að hvert skref færir okkur nær áfangastaðnum. Á svoleiðis göngum finnum við eða sköpum okkar eigin ævintýri, segjum sögur, förum í leiki og á endanum náum við markmiðinu og þá getum við öll verið mjög stolt af okkur!“

Hörður segir að í ár hafi verið í gangi Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar sem samanstandi af fjallgöngum, stuttum og löngum, þar sem fjölskyldan fari saman á fjöll á forsendum barnanna.

„Börn sem ljúka því verkefni fá nafnbótina Fjallagarpur Ferðafélags barnanna og það er sko mikil virðing sem fylgir slíkri nafnbót.“

Þau hjónin segja að einnig sé boðið uppá ýmsar lengri ferðir á sumrin sem njóti mikilla vinsælda, s.s. ferð um Laugaveginn, Strandir, á Víknaslóðir, um Lónsöræfi og fleira. Þau segja að mjög margir krakkar, og jafnvel foreldrar þeirra, hafi tekið sín fyrstu skref á fjöllum með FÍ í slíkum ferðum og upplifað ekki bara frábæra samveru heldur náttúru Íslands á þann hátt að aldrei verði hægt að gleyma því.

Verðlaunasamstarf í fræðslugöngum með Háskóla Íslands

Þau hjónin segja að Ferðafélag barnanna hafi átt í mjög virku og sérlega ánægjulegu samstarfi við Háskóla Íslands í röskan áratug þar sem fræðslu er bætt við göngurnar. Í þeim hefur vísinda- og fræðfólk HÍ gengið með fjölskyldunum og lagt kapp á miðla af þekkingu sinni um lífríki og umhverfi auk þess að útskýra flest allt sem ber fyrir augu. Þessar ferðir hafa verið kallaðar Með fróðleik í fararnesti en þær hafa notið gríðarlegra vinsælda.

 

Verkefnið hlaut hvorki meira né minna en Vísindamiðlunarverðlaun Rannís núna í haust en verðlaunin eru veitt því verkefni, þeim einstaklingum eða rekstraraðilum sem þykja skara sérstaklega fram úr við að miðla vísindum til almennings. Í þessum göngum hefur sjónum gjarnan verið beint að mikilvægi sjálfbærnihugsunar í umgengni við náttúruna og göngurnar þannig tekið mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

„Með fræðslu eins og í þessum ferðum, og í almennt upplýstri umræðu, getum við gert enn betur í að vernda náttúruna,“ segir Hrönn. „Það er brýnt að við getum öll tekið upplýstar ákvarðanir með það að markmiði að vernda íslenska náttúru. Hún er einstök á heimsvísu og okkur ber að vernda hana.“

 

 

„Það er mjög ánægjulegt að Ferðafélagið skuli vinna með Háskóla Íslands og sinna börnum sérstaklega og að þau læri að njóta landsins í kyrrð og ró,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna, um þetta gjöfula samstarf Háskólans og Ferðafélagsins.

„Að flétta saman sjálfbærnifræðslu og göngum er ein besta leiðin til að svala áhuga á umhverfisvernd og skilja mikilvægi þess að ganga vel um landið og ferðast fótgangandi,“ segir Salvör sem er einmitt ný og öflug stjórnarkona í stjórn FÍ en hún hefur hrósað Ferðafélagi barnanna sérstaklega á opinberum vettvangi.

Norðurfjörður í uppáhaldi

Þau Hrönn og Hörður segja að allar ferðirnar sem þau hafa leitt hafi verið mjög lærdómsríkar og líka afar ánægjulegar. Íslendingum er oft tíðrætt um veðrið því það er aldrei hægt að ganga að því sem vísu og flest vilja bjartviðri á gönguför. Það er nú samt þannig að þótt rigni þá er oftast að hægt að klæða veðrið af sér og hjá Ferðafélagi barnanna verða líka til mikil ævintýri í súldinni. Þau leggja bæði mikla áherslu á að öryggið sé algjört lykilatriði og að aldrei séu teknar neinar áhættur í ferðum félagsins.

Þegar vikið er að öllum þeim fjölbreyttu stöðum sem fjölskyldan hefur troðið í reynslupakkann eru þau alveg sammála um að allir staðir heilli á sinn hátt þótt sumir séu kannski „pínu uppáhalds.“

„Að koma í Norðurfjörð í Árneshreppi er til dæmis eins og að koma í annan heim en skáli Ferðafélags Íslands, Valgeirsstaðir, stendur þar við fjörðinn og það eru miklir töfrar á þessu svæði sem felast í stórbrotinni náttúru, kyrrð og fegurð,“ segir Hrönn. „Í Norðurfirði er hægt að fara í sjóinn beint úr skála Ferðafélagsins, ganga á fjöll, veiða, fara í Krossneslaug, leika sér og finna og skapa óteljandi ævintýri.“

Hörður kinkar kolli og bætir því við að Þórsmörk sé líka einstakur staður og það bregðist ekki að þegar gengið er inn í Þórsmörk, hvort sem það er eftir vel heppnaða Laugavegsgöngu eða dagsferðir, þá verði hughrifin alltaf gríðarleg.

„Svo býr bara borgin líka yfir sínum sjarma. Við erum heppin að búa nokkur hundruð metra frá Heiðmörk og þangað förum við oft til að njóta náttúrunnar.“

 

Samvera og hreyfing í náttúrunni besta afþreyingin

Þau Hrönn og Hörður segja að það skipti þau miklu máli að börnin sín og raunar öll börn fái að kynnast náttúrunni vel enda hafi þau ítrekað séð hvað útivera í náttúrunni geri sínum börnum gott.

„Það getur tekið tíma að verða öruggur í náttúrunni,“ segir Hörður, „en göngur í náttúru Íslands þjálfa svo margt, t.a.m. seiglu. Það er mjög gaman að fylgjast með því hvað krakkarnir öðlast fljótt sjálfstraust í svona ferðum. Einnig öðlast þeir þekkingu á landinu og náttúru og læra að bera virðingu fyrir henni.“

Hrönn bætir því við að samverustundir í náttúrunni gefi fólki kjörið tækifæri á að stíga út úr amstri hversdagsins en öll vitum við að þar getur asinn verið gríðarlegur.

„Að njóta fegurðar, kyrrðar og þess einfaldleika sem íslensk náttúra býr yfir endurnærir mann og dregur úr streitu. Líkaminn styrkist og allt eirðarleysi hverfur eins og dögg fyrir sólu.“