Ferð: Krepputunga - Sönghofsdalur

Hálendið

Krepputunga - Sönghofsdalur

Lýsing

Keyrt á einkabílum í Möðrudal, gist eina nótt í tjaldi eða skála. Daginn eftir er keyrt þaðan í Krepputungu. (Þarf að vera á jeppa eða jeppling)

Svo er gengið á söndum út í tunguna í átt að ármótum, um Sönghofsdal og ummerki um gamla árfarvegi skoðaðir. Þeir sem vilja, gista aftur í Möðrudal.

Brottför/Mæting
Brottför kl. 16 á einkabílum (jeppum/jepplingum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn

Ingvar Teitsson

Innifalið
Fararstjórn

Leiðarlýsing

1.d.,laugard. Ekið í Möðrudal og gist tjaldsvæðinu þar. Í Möðrudal er tjaldsvæði og einnig hægt að kaupa sér gistingu í skála, það ákveður hver fyrir sig. Til að komast þaðan í Krepputungu þarf að vera á jeppum eða jepplingum.
2.d. Lagt er af stað á sunnudagsmorgni kl. 8 frá tjaldsvæðinu í Möðrudal. Ekið að Kreppubrú og bílum lagt. Þaðan er gengið á söndum út í tunguna í átt að ármótum, um Sönghofsdal og ummerki um gamla árfarvegi skoðaðir. Þeir sem vilja, gista aftur í Möðrudal.