Stofnun Ferðafélags Íslands

Ferðafélag Íslands var stofnað 27. nóvember 1927.

Aðalhvatamaður að stofnun þess var Sveinn Björnsson, er þá var sendiherra í Kaupmannahöfn en síðar forseti Íslands. Að hvatningu Sveins tók Björn Ólafsson stórkaupmaður að sér að stofna félagið en Björn var mikill ferðamaður og áhugamaður um óbyggðir Íslands. Björn fékk til liðs við sig 8 mæta menn til að undirbúa stofnfund og semja ávarp til almennings um þann fund.

Ávarp til almennings

„Á síðari árum hefur mjög aukist áhugi manna um að ferðast hér um og kynnast óbyggðum landsins og öðrum lítt kunnum landshlutum. Áhugi hefur einnig vaknað fyrir því að kynna landið erlendum þjóðum, náttúru þess, sögu og þjóðhætti. Hefur mönnum fyrir löngu ljóst orðið að fáfræði erlendra þjóða um hagi vora er oss til hinnar mestu óþurftar á ýmsan hátt, og mundi oss á ýmsan veg reynast stórhagur að aukinni þekkingu á landi voru erlendis.

Hér á landi er enginn félagsskapur sem beitir sér fyrir því að kynna landið út á við né inn á við, eins og á sér stað í flestum löndum Norðurálfunnar. Á Norðurlöndum er slíkur félagsskapur (Turistforeninger) í hverju landi öflugur mjög, sem hefur margbrotið verk með höndum um að auka þekkingu manna á náttúru landsins, örva áhuga á ferðalögum og greiða fyrir því á ýmsan hátt. Vér undirritaðir álítum mjög æskilegt að slíkur félagsskapur yrði stofnaður hér á landi. Mun það varla orka tvímælis að félagsskapur sá mætti verða þjóðinni til hins mesta gagns og leysa úr ýmsum þeim viðfangsefnum sem engan eiga hér formælanda nú, viðfangsefnum sem ekki verður fram hjá gengið gaumlaust til lengdar.

Til þess að koma þessu máli á framfæri leyfum vér oss að bjóða öllum, er áhuga hafa um þetta mál, til fundar í Kaupþingssalnum sunnudaginn 27. nóvember 1927 kl. 2. Þar verður félagið stofnað á þessum fundi.“

Undir þetta ávarp rituðu: Björn Ólafsson, Níels P. Dungal, Einar Pétursson, Haraldur Árnason, Jón Þorláksson, Skúli Skúlason, Tryggvi Magnússon, Stefán Stefánsson, Valtýr Stefánsson, Helgi Jónasson frá Brennu og Geir G. Zoega.

Stofnfundurinn

Á stofnfundinn sem boðað var til með þessu ávarpi mættu 63 stofnfélagar. Félaginu voru sett lög og því kosin stjórn. Jón Þorláksson var kosinn forseti félagsins. Hann var verkfræðingur að mennt, hafði verið landsverkfræðingur og lengi einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum landsins, síðast forsætisráðherra.