Fara í efni  

Landmannalaugar

Í hjarta Friðlands að Fjallabaki

Landmannalaugar marka upphaf eða lok margra skemmtilegra gönguleiða um Friðland Fjallabaki, meðal annars um Laugaveginn, eina vinsælustu gönguleið landsins. Svæðið er þekkt fyrir litskrúðug fjöll úr líparíti, jarðhitasvæði og fjölbreytt útivistarsvæði.

Landmannalaugar henta bæði vel í dagsferðir og lengri dvöl. Margir koma í stuttar göngur og njóta svæðisins yfir daginn, á meðan aðrir velja að gista, fara sér hægar og ganga fleiri leiðir á svæðinu.

Ferðafélag Íslands rekur gistingu í Landmannalaugum.

Í Landmannalaugum er mikið úrval gönguleiða fyrir mismunandi getustig.

Dæmi um vinsælar gönguleiðir:

  • Laugahraun og Brennisteinsalda: Gangan um Laugahraun er um 5 kílómetra löng og tekur 1-2 klukkustundir. Gangan er nokkuð þægileg. Margir ganga einnig á Brennisteinöldu og lengja þá leiðina um 3 kílómetra. Nokkur hækkun er upp á Brennisteinsöldu. Útsýnið af toppnum er stórbrotið og þetta því kjörin ganga fyrir þá sem eru enn að kynnast svæðinu eða hafa skamman tíma.
  • Bláhnúkur: Margir líta framhjá göngunni á Bláhnúk þegar Landmannalaugar eru skoðaðar. Leiðin er um 5 kílómetra löng og tekur 2-3 klukkustundir. Leiðin er krefjandi á köflum. Útsýni af Bláhnúk er gott og þaðan má til dæmis sjá Brennisteinsöldu, sem er afar fallegt fjall. Hægt er að búa til hring úr göngunni og koma niður í Laugahraun, þá er gangan um 10 kílómetrar.
  • Skallahringur: Hringurinn er um 15 kílómetra langur og tekur 6-8 klukkustundir. Leiðin er krefjandi á köflum en örlítið fáfarnari en margar hinna leiðanna á svæðinu. Afar víðsýnt er af Skalla. Í lok göngunnar er Laugaveginum fylgt niður að Brennisteinsöldu og gegnum Laugahraun.
  • Grænihryggur: Gangan á Grænahrygg er um 18 kílómetra löng og tekur 8-10 klukkustundir. Leiðin er löng og sumstaðar þarf að vaða. Ganga þarf í skriðum á köflum. 

Í Landmannalaugum er fjöldi annara gönguleiða. Hægt er að kaupa kort af svæðinu hjá skálavörðum í Landmannalaugum, en einnig í vefverslun hér.

Að komast á staðinn

Á bíl: Að sumri til eru vegir að Landmannalaugum færir jeppum. Opnun veganna að vori er ákvörðuð af Vegagerðinni og fer eftir ástandi vega eftir veturinn. Í meðalári má ganga út frá því að hægt sé að komast inn í Landmannalaugar frá 20. júní til 15. september.

  • Sigölduleið úr Norðri (F208): Á þeirri leið eru engar óbrúaðar ár
  • Dómadalsleið úr Vestri (F225): Veitir stórkostlegt útsýni yfir Heklu en þvera þarf þó nokkrar óbrúaðar ár.

Frá 20. júní til og með 13. september  þurfa þeir sem koma akandi á eigin vegum á milli kl. 9 og 16 að bóka bílastæði fyrirfram og greiða þjónustugjald áður en komið er í Landmannalaugar. Nánari upplýsingar má finna á vef Náttúruverndarstofnunnar. Hér er hægt að bóka bílastæði.

Með rútu: Nokkur rútufyrirtæki bjóða upp á reglulegar áætlunarferðir frá Reykjavík, Selfossi og Hellu.

Góð ráð fyrir göngufólk

  • Skoðaðu veðurspá:  Við mælum með því að fólk skoði veðurspá fyrir brottför. Veður í Landmannalaugum er síbreytilegt. Það er því alltaf gott að undirbúa sig vel og vita hverju við er að búast.
  • Góður útbúnaður skiptir máli: Veður getur breyst hratt og því gott að hafa fatnað lagskiptan. Einangrandi innsta lag, hlýtt millilag og vatns- og vindhelt ysta lag er heppileg lagskipting. Skór þurfa að vera með grófum, góðum sóla og vatnsheldir. Það má ekki gleyma góðu nesti og vatni, góð næring skiptir höfuðmáli í fjallgöngum. Munið að henda rusli adrei í náttúruna.
  • Fylgið merktum gönguleiðum:  Fjöldinn allur af merktum gönguleiðum er í Landmannalaugum. Hugsum vel um náttúruna og fylgjum merktum leiðum.

Athyglisverðir staðir á leiðinni í Landmannalaugar

Margar skemmtilegar perlur er að finna á leið inn í Landmannalaugar. Gaman er að stoppa við:

  • Þjórsárdalur - Það er margt að skoða í Þjórsárdal, til dæmis er hægt að skoða Hjálparfoss, Gjána og Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal. Einnig er hægt að keyra inn að Háafossi.
  • Ljótipollur - Stuttu áður en komið er í Landmannalaugar er hægt að beygja út af Sigölduleið og skoða Ljótapoll. Þrátt fyrir nafnið er þetta mjög fallegur staður.
  • Rauðifoss og Rauðauga- Stutt er frá vegi á Dómadalsleið að Rauðafossi. Ofan við fossin er hægt að ganga að Rauðauga.

Laugin 

Gott er slaka á í lauginni skammt frá skálanum eftir gönguferðir. Hitinn í heitu uppsprettunum getur verið nokkuð ójafn en fyrir vikið ættu allir að geta fundið hitastig við hæfi. Trépallur liggur frá skálasvæðinu að lauginni en þar er einnig einföld skiptiaðstaða.

Gisting í Landmannalaugum

 

Í skálanum í Landmannalaugum er pláss fyrir 78. Á neðri hæðinni er rúmgott eldhús með gashellum, öllum eldhúsáhöldum og rennandi vatni. Þar er einnig matsalur með borðum og stólum. Góður pallur er við húsið þar sem hægt er að grilla og borða úti við.

Í Landmannalaugum er einnig vinsælt að tjalda, það er á opnu svæði með gott útsýni yfir litskrúðugt landslag og fjöll.

Smellið hér til að fá betri upplýsingar um gistimöguleika í Landmannalaugum og til að bóka gistingu.

Gisting í Landmannalaugum