Ævintýri bíða þín á Ströndum!
Innst í kyrrum firði á Ströndum má finna Valgeirsstaði. Allt um kring eru tignarleg fjöll sem bjóða upp á gífurleg útsýni og skemmtilegar göngur af ýmsu tagi. Fjölskylduvænn áfangastaður í víðfeðmri náttúru sem tekur vel á móti þér.
Ferðafélag Íslands rekur gistingu á Valgeirsstöðum í Norðurfirði.
Dæmi um gönguleiðir á svæðinu:
- Urðartindur (Tafla): Gangan er um 4 kílómetra löng og tekur 2-3 klukkustundir. Leiðin á Töflu er stutt en nokkuð brött. Stikaðri leið er fylgt frá vegi og upp fjallið.
- Umhverfis Krossnesfjall: Gangan er um 17 kílómetrar og tekur um 6 klukkustundir. Fyrst er veginum fylgt að Munaðarnesi, þaðan er gengið niður í fjöru sem getur verið seinfarin. Við Fell er stigi upp klettana og aftur upp á veg, sem er fylgt aftur heim á Valgeirsstaði. Á þessari leið er gengið framhjá Krossneslaug og því tilvalið að hafa með sér sundföt.
- Glissa: Gangan er um 12 kílómetra löng og tekur um 5 klukkustundir. Það er talsverð hækkun á þessari leið, enda hæsta fjallið á svæðinu. Gangan hefst á Eyrarhálsi, þaðan sem gömlum vegi er fylgt. Þar sem vegurinn liggur hæst er stefnan tekin beint á Glissu og stikaðri leið fylgt að Unnarskarði þar sem við göngum upp milli kletta. Gæta þarf varkárni á efsta hluta leiðarinnar, þar sem víða er bratt og laust grjót í hlíðum.
- Húsárfoss og Rjúkandi: Gangan er um 5 kílómetra löng og tekur um 2 klukkustundir. Best er að ganga upp sunnan við Húsá og vaða hana ofan við Húsárfoss. Þaðan er svo gengið að Hvalá, með stefnu að Rjúkanda.
- Drynjandi: gangan er um 6 kílómetra löng og tekur 2-3 klukkustundir. Gengið er yfir Hvalá á brú, hvort sem Húsá er vaðin og gengið þangað eða vegurinn ekinn alla leið ef bíll er við hæfi. Frá brúnni er gengið upp með ánni og best að halda sig aðeins frá gljúfurbrún þar til komið er að fossinum.
Hægt er að skoða fleiri gönguleiðir með því að Smella hér
Að komast á staðinn
Algengast er að koma á Valgeirsstaði akandi og er vegurinn þangað fær öllum. Ferðin tekur u.þ.b. 5 klukkustundir frá Reykjavík.
Góð ráð fyrir göngufólk
- Skoðaðu veðurspá: Við mælum með því að fólk skoði veðurspá fyrir brottför. Veður á Ströndum er síbreytilegt. Það er því alltaf gott að undirbúa sig vel og vita hverju við er að búast.
- Góður útbúnaður skiptir máli: Veður getur breyst hratt og því gott að hafa fatnað lagskiptan. Einangrandi innsta lag, hlýtt millilag og vatns- og vindhelt ysta lag er heppileg lagskipting. Skór þurfa að vera með grófum, góðum sóla og vatnsheldir. Það má ekki gleyma góðu nesti og vatni, góð næring skiptir höfuðmáli í fjallgöngum. Munið að henda rusli aldrei í náttúruna.
Krossneslaug
Gott er að slaka á í Krossneslaug eftir gönguferðir um svæðið. Í tæplega 4 km fjarlægt frá Valgeirsstöðum, á austurströnd Strandasýslu fæst úr lauginni einstakt útsýni yfir fjöll og haf.
Tenging við Hornstrandir
Hægt er að sigla á Hornstrandir úr Norðurfirði. Þaðan eru ferðir í Hornvík, Hlöðuvík og Látravík, þar sem Hornbjargsviti stendur. Einnig er hægt að sigla í Furufjörð, Reykjafjörð og að Dröngum. Það er því tilvalið að gista á Valgeirsstöðum fyrir siglingu.
Gisting í Norðurfirði
Valgeirsstaðir er gamall bóndabær innst í Norðurfirði. Þar er notaleg gisting með fimm svefnherbergjum sem rúma allt að 26 gesti. Húsið er búið öllum helstu þægindum, þar á meðal vel útbúnu eldhúsi, borðstofu og þægilegum svefnplássum. Í meðalári má gera ráð fyrir því að skálinn sé opinn frá byrjun júní til loka ágúst.
Þægilegt tjaldsvæði er umhverfis skálann að Valgeirsstöðum þar sem bæði má gista í tjöldum og ferðavögnum.
Smellið hér til að sjá nánari upplýsingar um gistingu á Valgeirsstöðum.
Gisting á Valgeirsstöðum