Styrkja starfsemi Ferðafélags Íslands

Um FÍ

Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag um níu þúsund félagsmanna og hefur frá stofnun, árið 1927, unnið að margvíslegri þjónustu fyrir ferðamenn.

Tilgangur félagsins er að stuðla að ferðalögum á Íslandi og greiða fyrir þeim. Þetta gerir félagið meðal annars með skipulagningu fjölbreyttra ferða ásamt uppbyggingu og rekstri fjallaskála víða um land. Jafnframt með viðamiklu útgáfustarfi, merkingu gönguleiða og upplýsingagjöf.

Fjölmargir aðilar hafa átt samstarf eða samfylgd með félaginu gegnum tíðina með einum eða öðrum hætti. Með starfi sínu sýnir félagið mikla samfélagslega ábyrgð sem margir vilja veita stuðning. Starf sjálfboðaliða innan FÍ hefur gert félaginu það mögulegt að byggja upp aðstöðu víða á hálendinu og í óbyggðum og um leið gert félagsmönnum og almenningi mögulegt að ferðast um landið og nýta aðstöðuna. 

Styrktu starfið

Með stuðningi þínum hjálpar þú Ferðafélagi Íslands að halda áfram uppbyggingu, viðhaldi og fræðslu um landið okkar. 

Stærsta verkefni félagsins um þessar mundir er endurnýjun og endurbygging Skagfjörðsskála í Langadal. Sú vinna hefur staðið síðastliðin þrjú ár og er unnið út frá þeirri áætlun að nýr Skagfjörðsskáli verði vígður og tekinn í notkun sumarið 2027. Nýr skáli verður byggður á grunni þess gamla sem verður rifinn. Nýi skálinn er með sama útlit og sá eldri en innra skipulag hefur verið uppfært með betra eldhúsi, stærri matsal, meira útsýni og salerni í skálanum.

Hér að neðan getur þú stutt starfið og hjálpað okkur að stuðla að ferðalögum á Íslandi.