Þórsmörk

Náttúruperla á hálendinu

Þórsmörk er einn vinsælasti útivistar- og ferðamannastaður landsins. Þar enda tvær þekktustu gönguleiðir landsins, Laugavegur og Fimmvörðuháls. Svæðið er þekkt fyrir fjölbreytt landslag, góðar gönguleiðir og skjólgott umhverfi milli jökla og fjalla.

Þórsmörk hentar bæði vel í dagsferðir og lengri dvöl. Margir koma í stuttar göngur og njóta svæðisins yfir daginn, á meðan aðrir velja að gista, fara sér hægar og ganga fleiri leiðir á svæðinu. 

Ferðafélag Íslands rekur gistingu í Langadal í Þórsmörk.

Í Þórsmörk er mikið úrval gönguleiða fyrir mismunandi getustig — allt frá stuttum göngum að lengri dagleiðum. 

  • Dæmi um vinsælar gönguleiðir
    • Valahnúkur: Gangan á Valahnúk er um 4 kílómetra löng og tekur 1-2 klukkustundir. Gangan er nokkuð þægileg, en hækkunin er snörp á köflum. Útsýnið af toppnum er stórbrotið og þetta því kjörin ganga fyrir þá sem eru enn að kynnast svæðinu eða hafa skamman tíma.
    • Tindafjallahringur: Tindafjallahringur er ein vinsælasta gönguleiðin í Þórsmörk. Leiðin er um 9 kílómetra löng og tekur 3-4 klukkustundir. Leiðin er krefjandi á köflum. Útsýni af Tindafjallahringnum er gott og þaðan má brot af því besta sem Þórsmörk hefur upp á að bjóða.
    • Rjúpnafell: Gangan á Rjúpnafell er um 15 kílómetra löng og tekur 6-7 klukkustundir. Leiðin er mjög krefjandi á köflum, síðasti spölurinn er brattur og stígurinn laus í sér. Tindafjallahringnum er fylgt í fyrstu, en beygt út af honum á miðri leið. Þaðan er gengið ofan í gil, upp úr því aftur og stígnum fylgt að fjallinu. Lokakaflinn liggur í krákustígum upp brattar hlíðar Rjúpnafells, og leiðin því ekki fyrir lofthrædda. Útsýni af toppi Rjúpnafells er þó gífurlega fallegt, þaðan sést upp á jöklana sem umkringja svæðið og eins yfir á Fimmvörðuháls. 
    • Réttarfell: Gangan á Réttarfell er um 8 kílómetra löng og tekur 3-4 klukkustundir. Leiðin getur verið krefjandi á köflum. Gengið er yfir Krossá og haldið í Bása. Þar hefst gönguleiðin, sem getur verið nokkuð brött á köflum. Af toppi Réttarfells er gott útsýni að Eyjafjallajökli. Hægt er gera hring úr gönguleiðinni en þá er gengið upp við Álfakirkju á móts við Langadal og niður í Bása. Sú leið er ekki fyrir lofthrædda.

Í Þórsmörk er fjöldi annara göngu- og hjólaleiða. Hægt er að kaupa kort af svæðinu hjá skálavörðum í Langadal, en einnig í vefverslun hér.

Að komast á staðinn

Á eigin vegum:

Hafa þarf í huga að til þess að komast akandi að skálanum í Langadal þarf að fara yfir margar stórar sem smáar ár og læki. Árnar geta verið erfiðar yfirferðar og mikilvægt að kunna til verka og vera á vel útbúnum bíl þegar þær eru þveraðar. Aðstæður geta breyst hratt í jökulám.

Síðasta áin á leiðinni, Krossá, er oft talin erfiðust yfirferðar. Færanleg göngubrú er yfir Krossá á sumrin og því þægilegt að leggja sunnan hennar og ganga síðasta spölinn í Langadal.

Hægt er að hafa samband við skálaverði til að fá upplýsingar um færð og aðstæður á svæðinu.

Með rútu:

Það er vinsæll og þægilegur kostur að taka rútu í Þórsmörk. Rútur ganga reglulega yfir sumartímann, meðal annars frá Reykjavík og Hvolsvelli.

Iðulega er ein rútuferð á dag úr Þórsmörk og aftur á Skóga. Það er heppilegur kostur fyrir þá sem leggja bílum sínum á Skógum og ganga Fimmvörðuháls.

Góð ráð fyrir göngufólk

  • Skoðaðu veðurspá:  Við mælum með því að fólk skoði veðurspá fyrir brottför. Veður í Þórsmörk er almennt gott, nærliggjandi fjöll og jöklar skýla svæðinu oft fyrir verstu veðrum. Það er þó alltaf gott að undirbúa sig vel og vita hverju við er að búast.
  • Góður útbúnaður skiptir máli: Veður getur breyst hratt og því gott að hafa fatnað lagskiptan. Einangrandi innsta lag, hlýtt millilag og vatns- og vindhelt ysta lag er heppileg lagskipting. Skór þurfa að vera með grófum, góðum sóla og vatnsheldir. Það má ekki gleyma góðu nesti og vatni, góð næring skiptir höfuðmáli í fjallgöngum. Munið að henda rusli adrei í náttúruna.
  • Fylgið merktum gönguleiðum:  Fjöldinn allur af merktum gönguleiðum er í Þórsmörk. Hugsum vel um náttúruna og fylgjum merktum leiðum.

Athyglisverðir staðir á leiðinni í Þórsmörk

Margar skemmtilegar perlur er að finna á leið inn í Þórsmörk. Gaman er að stoppa við:

  • Nauthúsagil - Stikla þarf á steinum eða vaða ána nokkuð oft á leið inn þetta fallega gil. Til að komast að fossinum í enda gilsins þarf að príla aðeins í restina.
  • Merkurker - Við góðar aðstæður er hægt að vaða inn þröngt gil til að komast í Merkurker. Vatnið er djúpt svo passa þarf að hafa réttan útbúnað og fara varlega. Einnig er hægt að fylgja góðum stíg.
  • Gígjökull - Umhverfi Gígjökuls breyttist talsvert í eldgosinu í Eyjafjallajökli 2010.
  • Stakkholtsgjá - Nokkuð auðvelt er að gang inn með ánni. Eftir um eins kílómetra gang skiptist gjáin í tvennt. Ef farið er til vinstri er hægt að koma sér inn í þröngt gil og finna þar fallegan foss.

Hjólreiðar í Þórsmörk

Síðustu ár hefur Þórsmörk orðið afar vinsæl meðal hjólreiðafólks. Svæðið hentar vel til fjallahjólreiða og hefur FÍ unnið náið með Landi og Skógi að merkingu hjólaleiða á svæðinu. Nýjar leiðir hafa verið merktar og eins hafa gleymdir stígar verið opnaðir aftur, til að skilja betur að umferð gangandi og hjólandi. Hjólaleiðir á svæðinu eru merktar með gulum stikum og á þeim leiðum er gert ráð fyrir að umferð hjólandi njóti forgangs. 

Gisting í Langadal

Í Skagfjörðsskála í Langadal er pláss fyrir 73. Á neðri hæðinni er rúmgott eldhús með gashellum, öllum eldhúsáhöldum og rennandi vatni. Þar er einnig stór matsalur með borðum, stólum og sófahorni. Góður pallur er við húsið þar sem hægt er að grilla og borða úti við. Bak við húsið ofan í laut er góð grillaðstaða fyrir stærri hópa en þar er stórt hlaðið útigrill. 

Í Langadal er einnig frábært tjaldsvæði, þar er skjólsælt en jafnframt stórkostlegt útsýni.

Smellið hér til að fá betri upplýsingar um gistimöguleika í Langadal og til að bóka gistingu.

Gisting í Langadal