Hornbjargsviti

Á Hornströndum renna haf og himinn saman í stórbrotinni fegurð. Á Hornbjargi stendur hinn sögufrægi Hornbjargsviti sem býður upp á einstaka gistingu með útsýni yfir Norður Íshafið. Í friðlandinu má skoða fjölbreytt dýralíf, kanna þverhnípt björg og fara í ýmsar göngur. Með öldurót og fuglakall sem félaga lofar Hornbjargsviti ævintýri sem er engu líkt.

Dæmi um gönguleiðir á svæðinu:

  • Hornbjarg að Kálfatindum, fram og til baka: Gangan er um 11 kílómetra löng og tekur 4-6 klukkustundir. Gengið er norður frá Hornbjargsvita um Almenningsskarð meðfram hlíðum Skófnabergs og Eilífstinds. Þegar komið er að Kálfatindum getum við valið að ganga á tindana eða njóta náttúrunnar við rætur þeirra.
  • Hornbjarg, hringleið: Gangan er um 18 kílómetra löng og tekur 7-8 klukkustundir. Gengið er norður frá Hornbjargsvita um Almenningsskarð og þaðan niður í Hornvík. Svo er haldið út að Horni og áfram í Ystadal, þaðan sem gengið út á Núp, ysta tanga Hornbjargs. Héðan er gengið yfir Miðfell, að Miðdalsvatni og komið að Kálfatindum. Þaðan er svo haldið heim í Hornbjargsvita.
  • Hornvík, hringleið: Gangan er um 12 kílómetra löng og tekur 4-6 klukkustundir. Eins og svo oft áður er fyrst gengið norður um Almenningsskarð og haldið niður í Hornvík þaðan. Áfram er gengið inn að Kýrá og henni fylgt þar til stefnan er tekin á Kýrskarð. Úr skarðinu er svo gengið aftur niður í Hornbjargsvita.
  • Hrolllaugsvík og Drífandi: Gangan er um 12 kílómetra löng og tekur um 4-6 klukkustundir. Gengið er suður frá Hornbjargsvita og yfir Axarfjall í Hrolllaugsvík. Þaðan er gengið að Bjarnanesi og svo haldið áfram að fossinum Drífanda. Sama leið er gengin til baka.

Friðlandið á Hornströndum er tengt saman með neti gönguleiða sem hægt er að velja á milli og samþætta að vild. Á vef Náttúruverndarstofnunar má skoða fleiri gönguleiðir og kort af svæðinu.

Að komast á staðinn

Á friðlandinu er einungis leyfilegt að ferðast um gangandi og því er aðkoman annars vegar sjóleiðis og hins vegar gangandi.

  • Með ferju: Siglt er í Látravík frá Norðurfirði. Einnig er hægt að sigla í Hornvík og ganga um 7 kílómetra leið í Hornbjargsvita.
  • Gangandi: Stysta landleið í Hornbjargsvita er frá Ófeigsfirði á Ströndum. 

Góð ráð fyrir göngufólk

  • Skoðaðu veðurspá:  Við mælum með því að fólk skoði veðurspá fyrir brottför. Veður á Hornströndum er síbreytilegt. Það er því alltaf gott að undirbúa sig vel og vita hverju við er að búast.
  • Góður útbúnaður skiptir máli: Veður getur breyst hratt og því gott að hafa fatnað lagskiptan. Einangrandi innsta lag, hlýtt millilag og vatns- og vindhelt ysta lag er heppileg lagskipting. Skór þurfa að vera með grófum, góðum sóla og vatnsheldir. Það má ekki gleyma góðu nesti og vatni, góð næring skiptir höfuðmáli í fjallgöngum. Munið að henda rusli aldrei í náttúruna.
  • Fjöldatakmörkun í friðlandinu: Takmörk eru sett á stærðir gönguhópa sem ferðast um friðlandið, þannig að hópar á vestari hluta svæðisins séu ekki fjölmennari en 30 og á austari hluta svæðisins eigi fleiri en 15. Hér má skoða sérstakar reglur um umferð og dvöl í friðlandinu.

Rötun á Hornströndum

Fæstar leiðir eru stikaðar en víðast hvar eru leiðir greinilegar. Við einhverjar leiðir eru vörður sem hægt er að fylgja. Þar sem þokusælt er á svæðinu er nauðsynlegt að hafa með sér viðeigandi búnað til rötunar, þ.e.a.s. kort, áttavita og GPS tæki.

Gisting í Hornbjargsvita

Hornbjargsviti er sögulegur viti í Hornstrandafriðlandi. Þar er gistirými fyrir allt að 40 manns í rúmgóðu húsi með sjö herbergjum. Vitinn er með eldhúsi, borðstofu og aðstöðu til að þurrka blaut föt og skó. Í meðalári má gera ráð fyrir að Hornbjargsviti sé opinn frá miðjum júní fram í byrjun ágúst.

Tjaldsvæði er fyrir utan vitann þar sem má gista í tjöldum.

Smellið hér til að sjá nánari upplýsingar um gistingu í Hornbjargsvita.

Gisting í Hornbjargsvita