Stefna FÍ

  • Stefna Ferðafélags Íslands 2026–2030

    Í hartnær heila öld hefur Ferðafélag Íslands hvatt landsmenn til að ferðast um landið sitt, kynnast náttúru þess og sögu og njóta útivistar í góðum félagsskap. Stefna félagsins fyrir árin 2026–2030 lýsir því hvert við stefnum. Við ætlum að varðveita dýrmætan arf og þróast um leið í takt við samfélagið og þarfir nýrra kynslóða.

    Ávarp forseta

    Í hartnær heila öld hefur Ferðafélag Íslands verið samofið sögu þjóðarinnar og á sér djúpar rætur í þjóðarsálinni. Með því að hvetja til útivistar og samveru í náttúrunni gegnir félagið mikilvægu samfélagslegu hlutverki og stuðlar að bættri lýðheilsu þjóðarinnar.

    Við viljum varðveita þennan dýrmæta arf en jafnframt þróast í takt við samfélagið og þarfir nýrra kynslóða. Líkt og í góðri göngu er mikilvægt að þekkja leiðina að baki og vita hvert skal halda. Með sterkar rætur í veganesti mörkum við leiðina til framtíðar, með vellíðan og öryggi fólks, virðingu fyrir náttúrunni og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.

    Ólöf Kristín Sívertsen, forseti Ferðafélags Íslands

    Leiðarljós FÍ

    Ferðafélag Íslands er leiðandi í fjölbreyttri útivist þar sem öryggi, náttúruvernd, aðgengi, fræðsla og framúrskarandi þjónusta eru í forgrunni.

    Hlutverk félagsins

    Í lögum Ferðafélags Íslands er skýrt kveðið á um að markmið félagsins sé að hvetja til ferðalaga um Ísland og greiða fyrir þeim. Jafnframt á félagið að vekja áhuga Íslendinga á landinu sínu, náttúru þess og sögu og efla vitund þeirra um nauðsyn varfærni í samskiptum manns og náttúru, góða umgengni og vernd náttúrunnar.

    Stefnan í hnotskurn

    • FÍ er þverskurður af samfélaginu og eftirsótt félag, bæði af almenningi og sem samstarfsaðili.
    • FÍ heldur í hefðir og sögu en er á sama tíma tilbúið að mæta nýjum óskum félaga á hverjum tíma.
    • Félagið veitir framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum.
    • Allir aldurshópar geta fundið ferðir við sitt hæfi í fjölbreyttu úrvali ferða hjá FÍ.
    • Áfram verður haldið með uppbyggingu nýrra göngu- og hjólaleiða.
    • Félagið byggir á öflugu sjálfboðaliðastarfi.
    • FÍ býr yfir frábærum skálum sem er vel viðhaldið.
    • FÍ tryggir aðgengi almennings að náttúruperlum. Útivist almennings og lýðheilsa eru leiðarljós félagsins.
    • Félagið býr að traustum rekstri og sterkum fjárhag.

    Fimm stefnuáherslur

    Stefna félagsins skiptist í fimm áherslur og fyrir hverja þeirra eru sett stefna og markmið.

    1. Öryggismenning og framúrskarandi þjónusta

    Stefna: Við sinnum félagsmönnum og gestum með persónulegri þjónustu þar sem öryggi er ávallt í fyrirrúmi. Markmið:

    • Veita framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum.
    • Festa öryggismenningu enn frekar í sessi í öllu starfi FÍ.

    2. Náttúruvernd og aðgengi

    Stefna: Við erum öflugur málsvari náttúrunnar og almannaréttar. Markmið:

    • Kynna landið fyrir almenningi með ferðum og fræðslu.
    • Efla ábyrga náttúruvernd.

    3. Skálar

    Stefna: Við leggjum áherslu á að skálar FÍ séu í takti við óskir félagsmanna. Markmið:

    • Tryggja framboð á skálarými í samræmi við þarfir.
    • Sinna markvissu viðhaldi allra skála FÍ.
    • Byggja nýja skála í samræmi við þróun nýrra gönguleiða.
    • Leita fjölbreyttra leiða til að fjármagna uppbyggingu skála.

    4. Nýsköpun og markaðssetning

    Stefna: Við bjóðum upp á framúrskarandi ferðir með nýsköpun og lýðheilsu að leiðarljósi. Markmið:

    • Þróa ferðaframboð sem mætir þörfum fjölbreyttra þjóðfélagshópa á öllum aldri.
    • Sinna öflugu markaðs- og fræðslustarfi.

    5. Traustur rekstur og fjármál

    Stefna: Við tryggjum að rekstur og fjármál FÍ byggi á traustum grunni og séu ætíð í jafnvægi. Markmið:

    • Efla traustan rekstur og styrkja fjárhag félagsins.
    • Tryggja skilvirkan rekstur mannvirkja félagsins.

    Breytingar í starfsumhverfi

    Ferðafélagið þarf ætíð að vera vakandi fyrir breytingum í starfsumhverfi sínu og taka mið af þeim í stefnu sinni og innleiðingu hennar. Dæmi um slíkar breytingar eru:

    • Aukin ásókn í hálendið og í lóðir og landsvæði félagsins.
    • Aukin samkeppni um frítíma fólks.
    • Breytt sjálfboðaliðastarf, þar sem erfiðara er að fá sjálfboðaliða til starfa.
    • Vaxandi kröfur um meiri gæði og þægindi í skálum á hálendinu.
    • Stafræn þróun sem getur skapað margvísleg tækifæri.
    • Loftslags- og náttúrubreytingar sem hafa áhrif á starfsemina, til dæmis veðurfar.
    • Fjölbreyttara samfélag sem kallar á rými fyrir alla þjóðfélagshópa og fleiri tungumál.
    • Fjölgun ferðamanna sem eykur ágang á viðkvæm svæði.
    • Öldrun þjóðarinnar og breytt aldurssamsetning félagsmanna.
    • Umhverfisvernd og umræða um þjóðgarða.

    Endurskoðun stefnunnar

    Stefna Ferðafélags Íslands gildir til ársins 2030 en verður endurskoðuð reglulega á tímabilinu. Endurskoðuð stefna, markmið og aðgerðir munu taka mið af árangri innleiðingar og breytingum í starfsumhverfinu.