Skilmálar og reglur

Ferðafélag Íslands starfar eftir margvíslegum skilmálum sem settir hafa verið utan um mismunandi þætti starfseminnar.

Persónuverndarstefna

Ferðafélag Íslands meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Í þeim tilfellum þar sem persónuupplýsingar eru skráðar t.d. vegna fyrirspurna, skráningu í ferðir eða á biðlista, þar sem þú þarft að skrá nafn þitt, heimilisfang, tölvupóstfang eða aðrar persónutengdar upplýsingar, skuldbindur Ferðafélagið sig til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og mun ekki miðla áfram upplýsingum sem skráðar hafa verið til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi aðila eða í kjölfar dómsúrskurðar. Öllum upplýsingum sem safnað er í gegnum eyðublöð vefsíðunnar, svo sem skráningar í verkefni eða á biðlista er eytt þegar skráningu í verkefni eða ferð lýkur eða í síðasta lagi í lok hvers árs.

Við heimsókn á vefsíðu okkar eru skráðar ýmsar nauðsynlegar upplýsingar um aðgengi og notkun. Þessar upplýsingar kunna að innihalda IP-tölur notanda. Þessum upplýsingum er einungis safnað af öryggisástæðum og fyrir bilanagreiningu. Þessi síða notar einnig vafrakökur fyrir nauðsynlega virkni, söfnun tölfræðiupplýsinga og fyrir deilingu á samfélagsmiðla. Sjá nánar um vafrakökustefnu FÍ hér að neðan. 

Vinnsla gagna fer fram svo lengi sem notandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef notandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Ferðafélagsins í tölvupósti á fi@fi.is.

Vinnsluaðilar sem vefsíðan notar og eru nauðsynlegir fyrir eðlilega virkni:

  • Amazon AWS cloud hosting - vefhýsing (Privacy Shield vottað).
  • Bugsnag - Villumeðhöndlun (Privacy Shield vottað).
  • New Relic - eftirlit með álagi og umferð vefþjóna (Privacy Shield vottað).

Vinnsluaðilar sem vefsíðan notar fyrir tölfræðilegar upplýsingar og deilingu á samfélagsmiðlum:

  • Google Analytics - Umferð og tölfræðiupplýsingar  (Privacy Shield vottað). Hægt er að slökkva á þessari virkni með því að smella hér.
  • AddThis - Deila efni á samfélagsmiðlum. Hægt er að slökkva á þessari virkni með því að smella hér.

Hér má nálgast yfirlit yfir skilmála og reglur félagsins.

Félagsskilmálar

Ferðaskilmálar

Gistiskilmálar

Vefsíðuskilmálar