Ferðafélag Íslands býður upp á fjölmarga fjalla- og gönguhópa með áherslu á reglulegar fjallgöngur og heilsubót.
Meginmarkmið þessara hópa er útivera, náttúruupplifun, gleði og góður félagsskapur. Eins og í öllum ferðum Ferðafélags Íslands er mikil áhersla lögð á fræðslu og öryggi á fjöllum.
Flestir gönguhóparnir fara af stað í upphafi árs og starfa ýmist í nokkra mánuði, hálft ár eða heilt ár.

