Skáli: Landmannalaugar

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Suðurland

Landmannalaugar

Landmannalaugar marka upphaf eða lok margra skemmtilegra gönguleiða um Friðland að Fjallabaki, meðal annars um Laugaveginn, eina vinsælustu gönguleið landsins.

Smellið á bláa hnappinn hér uppi til hægri til að bóka skálagistingu.

Panta bílastæði:

Frá 20. júní til 14. september 2025 þurfa gestir sem koma akandi á eigin vegum á milli kl. 9 og 16 að bóka bílastæði fyrirfram og greiða þjónustugjald áður en komið er í Landmannalaugar.
Nánari upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar.

Bókun bílastæða í Landmannalaugum

 

AÐSTAÐA

Skáli Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum er stór og rúmgóður og þar geta 78 manns sofið. Skálinn er á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er anddyri, stórt eldhús þar sem hægt er að setjast niður og borða og stór svefnskáli með kojum. Á efri hæðinni eru þrjú svefnloft með samliggjandi rúmbálkum og eitt lítið herbergi með kojum. Í skálanum er góð eldunaraðstaða með gasi, mataráhöldum, borðbúnaði og köldu og heitu rennandi vatni. Stórt kolagrill er úti á palli.

Skálinn tengist salernishúsi með góðum trépalli. Salernishúsið er stórt og þjónar ekki bara skála- og tjaldgestum svæðisins, heldur líka þeim fjölmörgu daggestum sem heimsækja Landmannalaugar. Sturtur eru í salernishúsinu. Rúmgott skálavarðahús stendur skammt frá.

Myndir úr Landmannalaugum.

Í Landmannalaugum hefur um nokkurt skeið verið rekið lítið kaffihús og verslun þar sem hægt er að kaupa helstu nauðsynjar.

Fyrsta sæluhús FÍ í Laugum var reist árið 1951.

OPNUN OG AÐGENGI

Skálinn í Landmannalaugum er opinn flesta mánuði ársins. Vinsamlega hafið samband við skrifstofu til að nálgast

 frekari upplýsingar. 

Að sumri til er hægt að aka á jeppum að skálanum eftir Fjallabaksleið nyrðri (F208) eða Dómadalsleið (F225).

Opnun veganna að vori er ákvörðuð af Vegagerðinni og fer eftir snjóalögum og ástandi vega eftir veturinn.
Í meðalári má ganga út frá því að hægt sé að komast inn í Landmannalaugar frá 20. júní til 15. september.

Frá 20. júní til 14. september 2025 þurfa gestir sem koma akandi á eigin vegum á milli kl. 9 og 16 að bóka bílastæði fyrirfram og greiða þjónustugjald áður en komið er í Landmannalaugar.
Nánari upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar.

Að vetri til þarf sérútbúna bíla eða vélsleða til að heimsækja Landmannalaugar. Mikilvægt er að kanna færið og snjóalög áður en lagt er af stað. Oft liggur krapi í hluta leiðarinnar og eins þarf að gæta að því að aka aðeins þar sem snjór hylur jörðina til að skemma hvorki gróður né mynda för í landslagið.

Það er líka vinsælt að ganga á gönguskíðum inn í Landmannalaugar að vetri til. Athugið að það er aðeins á færi reynslumikils ferðafólks með 5 árstíða útbúnað. Frá Hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum er tæplega 30 km gangur inn í Laugar.

Að nokkru leyti er hægt að fylgjast með snjóalögum í Landmannalaugum í gegnum vefmyndavél Landssambands vélsleðamanna. Einnig er hægt að skoða facebook síðu Landmannalauga þar sem skálavörður hverju sinni setur reglulega inn upplýsingar um veður og færð.

NÆSTA NÁGRENNI

Skálinn í Landmannalaugum er staðsettur við brún Laugahrauns, skammt frá heitum uppsprettum sem halda hita á læknum og lauginni sem staðurinn dregur nafn sitt af. Hitinn í læknum getur verið nokkuð ójafn og vert er að gæta allrar varúðar. Leiðin frá skála og í laugina liggur yfir mýri og gestir eru hvattir til að nota trébrýrnar og forðast að ganga í mýrinni. Athugið að það er stranglega bannað að fara með glerflöskur í laugina, nota sápu og skilja eftir rusl.

Landmannalaugar eru hluti af Friðlandi að Fjallabaki og allt umhverfið er rómað fyrir náttúrufegurð og litadýrð. Hægt er að fara í fjöldamargar lengri og skemmri gönguferðir um svæðið og nokkrar þeirra er að finna á þessu gönguleiðakorti af Landmannalaugum og nágrenni.

Ítarlega er fjallað um svæðið, jarðfræði þess og gönguleiðir í Landmannalaugum og í Friðlandinu að Fjallabaki í árbók FÍ 2010.

Upplýsingar

  • GPS staðsetning: N 63°59.600 - W 19°03.660
  • Símanúmer: 860 3335
  • Hæð yfir sjávarmáli: 550m
  • Næsti skáli: Hrafntinnusker
  • Aðgengi: Á jeppum
  • Skálavörður: Á sumrin

Aðrar upplýsingar

Hér er hægt að sjá 3D skanna af Landmannalaugum:

Skoða

Aðstaða í/við skála

Laugavegur

Hálendið Vegalengd: 54 km Göngutími 4-5 dagar
Skoða