Gistiskilmálar og verð

Nauðsynlegt er að panta gistingu og greiða þarf gistigjöld við bókun. Til að tryggja félagsverð þarf að greiða árgjald áður en greiðsla fer fram.  

Hópabókanir

Hópabókanir í skála skal greiða í einu lagi. Áður en greiðsla fer fram þarf forsvarsmaður hópsins að framvísa nafnalista þar sem kennitölur félagsmanna koma fram ásamt fjölda barna, ef einhver eru í hópnum. Eftir greiðslu fær forsvarsmaður þjónustubeiðni til að framvísa í skála.

Við viljum ítreka mikilvægi þess að forsvarsmaður hóps kynni sér og upplýsi samferðafólk sitt um bókunarskilmála félagsins til að koma í veg fyrir misskilning síðar.

Afslættir

Börn að 18 ára aldri, í fylgd forráðamanna, greiða hálft gjald bæði í skála og á tjaldsvæði. Börn, 6 ára og yngri, gista ókeypis með forráðamönnum sínum.

Félagsmenn í Ferðafélagi Íslands fá afslátt í alla skála og tjaldsvæði félagsins. Afsláttur félagsmanna gildir einnig fyrir maka og börn að 18 ára aldri í fylgd félagsmanns.

Afbókunarskilmálar

Skálagisting

Ef skálagisting er afbókuð gilda eftirfarandi reglur:

  • Afbókun 56 dögum eða meira fyrir dagsetningu: 75% endurgreiðsla gistigjalds.
  • Afbókun 55–21 dögum fyrir dagsetningu: 50% endurgreiðsla gistigjalds.
  • Afbókun 20–0 dögum fyrir dagsetningu: Engin endurgreiðsla gistigjalds.

Ekki er endurgreitt vegna veðurs eða annarra náttúruafla, seinkunar eða ef viðkomandi mætir ekki á staðinn.


Tjaldgisting

Ef tjaldgisting er afbókuð gilda eftirfarandi reglur:

  • Afbókun 2 dögum eða meira fyrir fyrstu gistinótt: Endurgreitt að fullu.
  • Afbókun 1 degi fyrir fyrstu gistinótt eða samdægurs: Engin endurgreiðsla.

Bókun má færa milli tjaldsvæða eftir að ferð er hafin. Ekki er endugreitt vegna breytinga.

Ekki er endurgreitt vegna veðurs eða annarra náttúruafla, seinkunar eða ef viðkomandi mætir ekki á staðinn.


Bókunarpakkar

3, 4 og 5 nátta gistipakkar í skálum þarf að afbóka í heild sinni. Ekki er hægt að afbóka eða fá endurgreiddar einstakar nætur innan pakkans.

Við afbókun á skálabókun gilda eftirfarandi reglur:

  • Afbókun 56 dögum eða meira fyrir fyrstu gistinótt: 75% endurgreiðsla af gistigjaldi.
  • Afbókun 55-21 dögum fyrir fyrstu gistinótt: 50% endurgreiðsla af gistigjaldi.
  • Afbókun 20 dögum fyrir fyrstu gistinótt eða samdægurs: Engin endurgreiðsla.

Ekki er endurgreitt vegna veðurs eða annarra náttúruafla, seinkunar eða ef viðkomandi mætir ekki á staðinn.

Bókanir fyrir 20. júní eða eftir 15. september

Hugsanlega verður ekki rennandi vatn á svæðinu. Gestir þurfa þá að koma með vatn með sér. Þurrkamrar eru við skála.

Aðstæður geta verið erfiðar og jafnvel varasamar. Gestir þurfa að vera viðbúnir meiri snjó og öfgakenndara veðri. Göngufólk hugi að útbúnaði og meti eigin getu og reynslu. Bendum jafnframt á www.safetravel.is

Ef ófært er inn í Landmannalaugar fá gestir 100% endurgreiðslu á öllum gistigjöldum. Þetta gildir fyrir bókanir á Laugaveginum.

Ferðafélag Íslands leggur áherslu á samstarf við Náttúruverndarstofnun, Vegagerðina og aðra viðeigandi aðila.

Opnun/lokun skála fer ávallt eftir aðstæðum og nýtur náttúran og öryggi göngufólks forgangs.

Tryggingar

Ferðafélag Íslands tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu og dvelja í skálum eða á tjaldsvæðum félagsins á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar fyrir ferðir, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.

Óskilamunir

Hér má sjá upplýsingar um meðferð óskilamuna: Óskilamunir

 

 

Verðskrá 2026

Verðskráin gildir fyrir gistingu frá og með 1. maí 2026 til 30. apríl 2027.

 

Verðskrá er birt með fyrirvara um innsláttarvillur

Afsláttur félaga gildir einnig fyrir maka og börn að 18 ára aldri.

* Gistináttaskattur er innifalinn í verði.

** Ef aðstaða við skála FÍ er nýtt, svo sem klósett, nestishús eða grill, án þess að gista, þarf að greiða aðstöðugjald. Aðstöðugjald er innifalið í gistigjaldi fyrir skála og tjöld. Aðrir gestir sem koma í heimsókn yfir daginn eða hluta úr degi og nýta sér aðstöðuna þurfa að greiða aðstöðugjald.
Þetta á ekki við um Landmannalaugar, þar sem aðstöðugjald er innifalið í bílastæðagjaldi sem Parka innheimtir yfir sumartímann.

Markmiðið með aðstöðugjaldinu er að tryggja að svæðið haldist snyrtilegt og að allir geti gengið að hreinum salernum og góðri aðstöðu.

*** Sturtugjöld eru ekki innifalin í gistingu né aðstöðugjaldi.