Ferð: Raufarhöfn og nágrenni

Norðurland

Raufarhöfn og nágrenni

Lýsing

Fimm daga bækistöðvarferð. Raufarhöfn er þorp við heimskautsbaug með mikla sögu og birtan er töfrandi á Melrakkasléttu um sólstöðurnar. Gengið verður á tvo nyrstu tanga landsins og komið á söguslóðir Fóstbræðrasögu.

Allar nánari upplýsingar í síma: 8928202

Brottför/Mæting
Mæting í Gistihúsið Hreiðrið á Raufarhöfn á Melrakkasléttu
Innifalið
Gisting í uppbúnum rúmum, 3x kvöldmatur, göngukort og fararstjórn Verð: 62.000 / 67.000

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Bókun í ferð:

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið: ffnordurslod@simnet.is

Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina í síðasta lagi 17.maí

1.d., mánud. Þátttakendur mæta í Gistihúsið Hreiðrið á Raufarhöfn á Melrakkasléttu og koma sér fyrir. Kl. 20:00 er fundur með fararstjóra um dagskrá næstu daga.2.d. Á og í kringum Raufarhöfn. Gengið meðfram höfninni, að vitanum, um Höfðann, upp að Heimskautsgerði, niður á Klifin, yfir Ásinn, niður að sjó og heim aftur. Síldarsögur og aðrar sögur. (10 km.)3.d. Nyrstu tangar landsins. Ekið út á Melrakkasléttu, gengið út á Hraunhafnartanga, og að Rifi á Rifstanga. (14 km.) Fóstbræðrasaga og búskaparsaga.4.d. Ekið suður fyrir Deildará og gengið upp með ánni, síðan fram Bæjarásinn, út á Hólshöfðann og meðfram sjónum að upphafsreit. (11 km.) Fallegar flúðir og sjávarsýn.5.d. Gengið út á Súlur sunnan Raufarhafnar. Komið við í Krókshöfn og Súlnahöfn. (7 km.)