Ferð: Bláfell á Kili

Hálendið

Bláfell á Kili

Gengið á góða spá
Lýsing

Gengið verður á eitt af aðal útsýnisfjöllunum Íslands, Bláfell á Kili. Fjallið er 1.204 metra hátt og er frekar einfalt uppgöngu. Útsýnið þarna uppi er himneskt enda er fjallið hátt. Hlöðufell, Jarlhettur, Langjökull, Kerlingarfjöll og Hofsjökull blasa þar við svo eitthvað sé nú nefnt .  

Útbúnaður og nesti:
Hefðbundinn skjól- og göngufatnaður.
Gönguskór.
"Hálkubroddar" mega vera með í bakpokanum, en ekki nauðsynlegt að hafa með.
Nesti fyrir daginn. Myndavélin.   

Brottför/Mæting
kl. 08:00 hjá Olís við Rauðavatn.
Fararstjórn

Ragnar Antoniussen 

Facebook : FÍ- Gengið á góða spá 

Innifalið
Fararstjórn

Leiðarlýsing

Tímaáætlun:

08:00 Hittumst við Olis við Rauðavatn og sameinumst í bíla. 

10:30 Gangan hefst undir Bláfelli. Ekið er aðeins útaf veginum á Bláfellshálsi. 

15:00 Göngu líkur. Gerum ráð fyrir að vera komin aftur að bílum. 

Göngulengd: 8 km.
Göngutími: sirka 4 klst.