Ferð: Fjöruferð á Eyrar

Suðurland

Fjöruferð á Eyrar

Lýsing

Við skoðum ýmsar lífverur fjörunnar, grúskum og leitum að kröbbum og öðrum smádýrum, greinum þörunga og fleira, í skemmtilegri fjöruferð á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þar er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf.
Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur og fjörulalli með meiru mun leiða gönguna.
Gott er að mæta vel klæddur, í stígvélum og með fötur eða glær ílát til að safna hinum ýmsu lífverum. Ekki gleyma nesti. 2-3 klst.

Þátttaka er ókeypis og öll velkomin. Ekkert að panta, bara mæta!

 


Brottför/Mæting
Kl. 12 á bílastæði við gömlu höfnina á Eyrarbakka.

Búnaður

Pakkað fyrir bakpokaferð

Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.

Ýmislegt

  • Bakpoki, ekki of stór
  • Svefnpoki, léttur og hlýr
  • Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann
  • Tjald og tjalddýna
  • Göngustafir
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Höfuðljós
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Broddar, ef þurfa þykir
  • Peningar

Snyrtivörur / sjúkravörur

  • Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
  • Verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði / þvottapoki
  • Sólvarnarkrem og varasalvi
  • Eyrnatappar

Mataráhöld / eldunartæki

  • Prímus, eldsneyti og pottur
  • Eldspýtur
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Vasahnífur / skæri

Fatnaður

  • Góðir gönguskór
  • Vaðskór / skálaskór
  • Tvö pör mjúkir göngusokkar
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Nærbuxur til skiptana
  • Nærföt, ull eða flís
  • Flís- eða ullarpeysa
  • Millilag úr ull eða flís
  • Göngubuxur
  • Stuttbuxur
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar

Matur

  • Frostþurrkaður matur
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Haframjöl
  • Smurt brauð og flatkökur
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar