Ferð: Sumarsólstöður á Snæfellsjökli

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Vesturland

Sumarsólstöður á Snæfellsjökli

Lýsing

Á sumarsólstöðum er lengsti dagur ársins. Þá er lengstur sólargangur og sólin hæst á lofti, hér á norðurhveli jarðar. Takmarkið er að vera á toppi jökulsins við sólsetur og upplifa sólarupprás á niðurleiðinni.
Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað göngu. Jöklabúnaður nauðsynlegur; ísöxi, jöklabroddar og göngubelti. 

Í þessari ferð verður gengið á tvo af hundrað hæstu tindum landsins. Sjá nánar. 

Brottför/Mæting
Kl. 20 frá Jökulhálsinum.
Fararstjórn

Örlygur S. Sigurjónsson

Innifalið
Fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð á jökli

Ísland liggur við heimskautsbaug og alltaf má búast við vondum veðrum, sér í lagi þegar ferðast er á há fjöll eða jökla. Jafnframt krefjast jöklaferðir margvíslegs öryggisbúnaðar og því er dagpoki jöklaferðalangs töluvert þyngri en þegar gengið er á lægri fjöll utan jökla.

Athugið að enginn skyldi ferðast einn á jökli. Á sprungusvæðum jökla þarf að ganga í línu og lágmarkið er þrír í línu. Aðeins þeir sem hafa góða þekkingu á sprungubjörgun ættu að ferðast án fararstjóra á jökli.

Listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir uppháir gönguskór úr leðri eða stífir jöklaskór
  • Mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís
  • Peysa úr ull, flís eða mjúkskel
  • Göngubuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi. Nauðsynlegt er að taka nóg af vatni þegar ferðast er lengi á jökli
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar

Öryggisbúnaður

  • Belti með karabínu
  • Jöklabroddar sem búið er að stilla á gönguskóna
  • Ísöxi
  • Jöklalína (hjá fararstjóra)
  • Sprungubjörgunarbúnaður (hjá fararstjóra)
  • Snjóflóðaýlir, snjóflóðastöng og skófla ef ferðast er um möguleg snjóflóðasvæði

Ef fjallaskíðaferð

  • Fjallaskíði og stafir
  • Skíðahjálmur
  • Skinn undir skíðin
  • Broddar undir skíðin

Fróðleikur

         

Gott að vita

  • Gangan er um 12 km.
  • Hækkun: 1000 m.
  • Göngutími: 6-8 klst.
  •  Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað göngu.
  • Jöklabúnaður nauðsynlegur;  ísöxi, jöklabroddar og göngubelti. 

Þjóðlendur Íslands.
Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins og þess að starfi óbyggðanefndar er að ljúka verður efnt til gönguferða um þjóðlendur í þeim tilgangi að kynna þær fyrir almenningi. Samstarf verður við Ferðafélag Íslands og deildir FÍ í hverjum landsfjórðungi um gönguferðir og fræðslu um þjóðlendur. Gönguferðirnar verða sumarið 2024.
_______________________________________________________
Jöklabúnaður:
Hægt er að leigja jöklabúnað hjá Ferðafélagi Íslands fyrir þessa ferð með því að smella HÉR