FÍ Alla leið haust

Um verkefnið 

FÍ Alla leið gönguhópurinn heldur áfram í haust með fjallgöngudagskrá sem byrjar 24. ágúst og lýkur í lok nóvember.
Hópurinn hentar þeim sem hafa reynslu af fjallgöngum, þeim sem vilja nota þessa frábæru leið til að hreyfa sig, stunda útivist, njóta náttúrunnar í krefjandi umhverfi og kynnast skemmtilegum fjallavinum.
Á dagskránni eru 14 fjallgöngur sem skiptast í sex kvöldgöngur sem farnar eru á mánudögum og átta dagsferðir sem verða um helgar. Á dagskránni hjá þessum gönguhóp er helgarferð í Þórsmörk og þá gengið yfir Fimmvörðuháls og umhverfi Þórsmerkur skoðað.
 
Umsjón: Hjalti Björnsson og Bjarni Már Gylfason
 

Verð: 64.000 fyrir félagsfólk FÍ.
Verð: 72.900 árgjald FÍ 2024 innifalið í verði.

Verð: 89.900, FÍ Alla leið vor, árgjald FÍ 2024 innifalið í verði.
Verð: 129.900, FÍ Alla leið vor og FÍ Alla leið haust, árgjald FÍ 2024 innifalið í verði. 

Allir þátttakendur þurfa að greiða árgjald 2024 til að taka þátt í verkefninu og makar/sambýlisfólk greiða fjölskylduaðild, hálft árgjald.

 

Dagskrá Alla leið, haust

Dag Vikudagur Tími Áfangastaður Lengd/hækkun
21. ágú Kynningarkvöld 20:00 TEAMS fundur  
24. ágú  Laugadagur 7:00 Snækollur og Loðmundur og fl. *** 15km /800m 
2. sep Mánudagsganga 18:00 Miðfell Þingvöllum 7km /350m
7.-8. sep Helgi í Þórsmörk 7:00 Fimmvörðuháls og Þórsmörk */** 35km /1500m 
16. sep Mánudagur 18:00 Snókur og Snóksfjall 6km /500m
21. sep Laugadagur 8:00 Leggjarbrjótur * 18km /500m
30. sep Mánudagur 18:00 Villibað í Reykjadal 8km /350m
05. okt Laugadagur 9:00 Svartitindur  14km/600m 
14. okt Mánudagur 18:00 Tröllafoss og Stardalshnúkur 6,5km /400m
19. okt Laugadagur 9:00 Þúfufjall og Digritindur 9 km /550m
28. okt Mánudagur 18:00 Helgfell í Hafnarfirði 6km /300m
02. nóv Laugadagur 9:00 Skeggi 13km / 550m
11. nóv Mánudagur 18:00 Sólarhringurinn 10km / 300m
16. nóv Laugadagur 10:00 Gamla Hvítmaga, Sólheimajökull 17km / 800m

 

*        Rúta / sigling sem greiðist aukalega
**     Gisting sem greiðist aukaleg
***   Jöklabúnaður nauðsynlegur
**** Í samráði við almannavarnir 

 

Ferðafélag Íslands áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða endurskipuleggja dagskrá fjallaverkefna félagsins vegna sóttvarnarfyrirmæla  eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka.

Afbókunarskilmálar fyrir fjalla-og hreyfiverkefni:

  • Afbókun eftir að verkefni er hafið: Engin endurgreiðsla.

Tryggingar: Ferðafélag Íslands tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar fyrir ferðir.

Birting myndefnis:
Þátttakendur í ferðum og námskeiðum FÍ samþykkja með þátttöku sinni að félaginu sé heimilt að taka myndir eða myndbönd af þátttakendum og nota í birtingu á heimasíðu, samfélagsmiðlum og prentmiðlum. Þátttakandi getur ávallt hafnað birtingu myndefnis af sér með því að senda póst á fi@fi.is.

Smelltu á mynd til að bóka